Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 15 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Framboðslisti Samfélagsins í Norðurþingi fullskipaður og samþykktur Markús Þ. Þórhallsson Aðsend / Aðsend/Listi Samfélagsins í Norðurþingi Framboðslisti M – Lista Samfélagsins í Norðurþingi var samþykktur 15. mars og er fullskipaður. Rúnar Traustason, rekstrarstjóri Íslandspósts á Húsavík og slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður, er í efsta sæti. Listinn er skipaður óháðum, félagshyggjufólki og Miðflokksfólki í Norðurþingi að því er segir í tilkynningu. Markmiðið sé að sameina öflugt fólk með mikla reynslu úr ólíkum áttum til að vinna að hagsmunum íbúa sveitarfélagsins. Fyrir 45 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Varnarmál Þýsk freigáta leitaði vars undan veðri í Vopnafirði Markús Þ. Þórhallsson Þýska freigátan Brandenborg á siglingu. Bundeswehr/Sascha Jonack Þýskt herskip leitaði vars undan veðri í Vopnafirði fyrir helgina. Austurfrétt greinir frá því að það sé freigátan Brandenborg og samkvæmt upplýsingum Landhelgisgæslunnar hafi hún verið við landið með leyfi stjórnvalda. Gæslan gefi ekki frekari upplýsingar um ferðir hennar. Freigátan sé samkvæmt skráningu á skipasíðum á leiðinni til Grikklands og skráð í þjónustu Atlantshafsbandalagsins. Brandenburg var stóran hluta seinasta árs til taks fyrir botni Miðjarðarhafs. Haft er eftir þýskum fjölmiðlum að þýsk skip hafi undanfarið tekið þátt í aðgerðum NATO í Norðursjó og á Eystrasalti. Ferðir fleiri erlendra skipa hafa vakið athygli síðustu daga. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Trump hótar árásum á raforkuver Írans verði Hormússund ekki opnað Bandaríkjaforseti ógnar Írönum með gereyðingu allra raforkuvera landsins opni byltingarvörðurinn ekki fyrir alla skipaumferð um Hormússund innan tveggja sólarhringa. Íranir hóta í staðinn árásum á orkuinnviði og afsöltunarstöðum í nágrannalöndunum. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Kúba Straumrof varð um nær allt land eina ferðina enn — skip komu með neyðarbirgðir í vikunni Úr sér gengið raforkukerfi Kúbu hefur valdi' umfangsmiklu og langvarandi rafmagnsleysi. Straumrof varð um allt landið í gær á sama tíma og neyðarbirgðir berast til landsins. Hafnbann Bandaríkjanna hefur leitt af sér vöruskort og vanda í ferðamennsku. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Donald Trump fagnar andláti Roberts Mueller fyrrverandi forstjóra FBI Robert Mueller, fyrrverandi forstjóri Alríkislögreglu Bandaríkjanna, er látinn. Donald Trump fagnaði andláti Muellers sem rannsakaði meint tengsl framboðs hans og Rússa í kosningunum 2016. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Trúarbrögð Séra Jakob í viðtali hjá stórum kaþólskum fjölmiðli Séra Jakob Rolland segist mestmegnis hafa fengið jákvæð viðbrögð við ummælum sínum um samkynhneigð fyrr í mánuðinum. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Gul veðurviðvörun á sunnan- og austanverðu landinu vegna hríðar og hvassviðris Gul veðurviðvörun gildir fyrir Suðausturland, Austurland að Glettingi og Austfirði í nótt og fram undir hádegi vegna hríðarveðurs og hvassviðris. Vegir á sunnan- og austanverðu landinu verða lokaðir. Nokkrum komum frá Vesturheimi hefur verið aflýst. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Fjarðabyggð Grunur um íkveikju í Fjarðabyggð Slökkvilið Fjarðabyggðar hvetur fólk til að fara varlega með eld vegna þess hve þurr gróður er um þessar mundir. Fyrir 5 tímumÍÞRÓTTIR Frjálsar Eitt heimsmet og tvö mótsmet á öðrum degi HM Svisslendingurinn Simon Ehammer sló heimsmetið í sjöþraut á heimsmeistaramótinu í frjálsíþróttum innanhúss í dag. Svíinn Mondo Duplantis sló mótsmetið í stangastökki og Kanadamaðurinn Christopher Morales Williams í 400 metra hlaupi. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Utanríkismál Þýskt herskip við Íslandsstrendur Guðmundur Atli Hlynsson Þýskt herskip, sem nú er statt utan við Dýrafjörð á Vestfjörðum, er ekki við Ísland í tengslum við erlenda snekkju sem meinað var um hafnarkomu á Akureyri fyrr í dag. Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, staðfestir þetta. Mbl.is greindi frá því í kvöld að þýskt herskip væri á siglingu við landið. Samkvæmt Marine Traffic lagði skipið, NATO WARSHIP 219, af stað frá Þýskalandi í gær. Í svari við fyrirspurn fréttastofu segir Ásgeir Erlendsson að algengt sé að skip erlendra ríkja sigli á hafsvæðinu umhverfis Ísland. Skipið sé hér með leyfi íslenskra stjórnvalda og tengist fyrrnefndri snekkju ekki með neinum hætti. Herskipið sem um ræðir er statt undan Dýrafirði. marinetraffic.com Fyrir 6 tímumÍÞRÓTTIR Körfubolti Ármann fellur úr úrvalsdeildinni Ármann er fallið úr Bónusdeild kvenna í körfubolta. Það varð ljóst þegar Hamar/Þór, sem var í fallbaráttunni, vann Keflavík 88-85. Ármann tapaði svo fyrir Tindastóli, 95-69. Þá kemst Álftanes ekki í úrslitakeppni Bónusdeildar. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Bandaríkjaher segir getu Írana til að gera árásir á Hormússund verulega skerta Bandaríkjaher hefur veikt getu Írana til að gera árásir á Hormússundi undanfarna daga. Hópur rúmlega tuttugu ríkja segist vera tilbúinn að tryggja öruggar siglingar um sundið. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Grindavíkurbær Grindvísk ungmenni komu saman og ræddu framtíðina í heimabænum Brottflutt grindvísk ungmenni komu saman á ungmennaþingi í heimabænum í dag. Þau segja mikilvægt að unga fólkið fái að hafa raunveruleg áhrif. Fyrir 6 tímumÍÞRÓTTIR Lyftingar Kristín er Evrópumeistari í klassískum lyftingum Kristín Þórhallsdóttir varð í dag Evrópumeistari í -84 kg flokki í klassískum lyftingum. Hún vann opna flokkinn og setti um leið heimsmet í aldursflokki 40-49 ára. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Vinstrið kynnir framboðslista sinn í Reykjavík Vinstrið, sameiginlegt framboð Vinstri grænna og Vor til vinstri hefur kynnt framboðslista sinn í Reykjavík. Sanna Magdalena Mörtudóttir leiðir sem oddviti en Líf Magneudóttir er í 2. sæti. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Flóttafólk Enginn leikskóli og engar tómstundir Barnaheill og umboðsmaður barna óttast um velferð barna í leit að alþjóðlegri vernd. Þau hafa ekki aðgang að leikskóla eða tómstundum og félagsmálaráðherra heitir umbótum. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Utanríkismál Landhelgisgæslan meinaði erlendri snekkju hafnarkomu á Akureyri Erlendri snekkju var meinuð hafnarkoma við Akureyri í dag á grundvelli þvingunaraðgerða gegn Rússlandi sem íslensk stjórnvöld framfylgja. Utanríkisráðuneytið og Landhelgisgæslan eiga í samskiptum um málið sem er í vinnslu. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Náttúra Stórt skarð í hlíðinni og sjór flæddi yfir bílastæðið Sjór hefur ítrekað flætt yfir bílastæðið við Reynisfjöru og fólk átti fótum sínum fjör að launa í stórstreymi í vikunni. Sjórinn hefur grafið stóran hluta úr hlíðinni ofan við fjöruna. Fyrir 8 tímumÍÞRÓTTIR Fimleikar Gerpla aftur tvöfaldur bikarmeistari Karla- og kvennalið Gerplu urðu bikarmeistarar í áhaldafimleikum í dag og vörðu þar með bæði bikarmeistaratitlana frá því í fyrra. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Velferðarmál Hafa beðið lengi eftir bótum og íhuga mál við ríkið Fólk sem vistað var á barnaheimilinu við Hjalteyri á 8. áratugnum skoðar að leita til dómstóla til að fá greiddar bætur vegna þess tjóns sem vistin olli því. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Trump hótar að senda ICE-fulltrúa í flugvallareftirlit Donald Trump Bandaríkjaforseti hótaði í dag að senda fulltrúa innflytjendaeftirlitsins, ICE, til að annast öryggisgæslu á flugvöllum vegna langvarandi deilu um fjárveitingar. 21. mars 2026 kl. 16:24ERLENDAR FRÉTTIR Tækni og vísindi Sitjandi beinagrindur af Göllum vekja áleitnar spurningar Beinagrindur frá tímum Galla sem fundist hafa í frönsku borginni Dijon vekja áleitnar spurningar meðal vísindamanna um greftrunarsiði þjóðflokksins. Þær eru af karlmönnum, sitja uppréttar og horfa til vesturs. Var þetta refsing eða umbun? 21. mars 2026 kl. 16:20ÍÞRÓTTIR Handbolti Leikdagur: Annað tap gegn Svíum Ísland tapaði fyrir Svíþjóð 27-30 í vináttulandsleik í handbolta karla í kvöld. Uppselt var á leikinn sem fram fór í Kaplakrika. Svíþjóð var tveimur mörkum yfir í hálfleik, 11-13. Þetta var seinni leikur liðanna en Svíar unnu þann fyrri á Hlíðarenda á fimmtudagskvöld, 33-35. Þetta er í fyrsta sinn sem íslenska landsliðið kemur saman frá því á Evrópumótinu í janúar. Leikurinn er sýndur beint á RÚV. Hér var fylgst með gangi mála í leiknum. SAMANTEKT 21. mars 2026 kl. 15:52ÍÞRÓTTIR Handbolti Endurkoma Stjörnunnar bjargaði liðinu frá falli Haukar og Stjarnan gerðu jafntefli í Olísdeild kvenna í handbolta í dag, 26-26. Á sama tíma tapaði Selfoss fyrir ÍR, 33-20. Úrslitin þýða að Selfoss fellur niður í fyrstu deild en Stjarnan fer í umspil um áframhaldandi sæti í úrvalsdeildinni. 21. mars 2026 kl. 15:47INNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Vikulangt gæsluvarðhald vegna alvarlegrar árásar í bílakjallara Maðurinn var handtekinn í gær og úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhald í gærkvöldi. Árásin er rannsökuð sem tilraun til manndráps og rannsóknin er umfangsmikil. 21. mars 2026 kl. 15:20INNLENDAR FRÉTTIR Mýrdalshreppur Grófu skurði til að verjast ágangi sjávar Landeigendur í Reynisfjöru reyna að verjast náttúruöflunum með því að grafa skurði og reisa mön til að vernda bílastæðið, sem ítrekað hefur flætt yfir undanfarið. 21. mars 2026 kl. 15:16INNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál „Ísland yrði í aftursætinu, rétt eins og Samfylkingin er í aftursætinu hjá Viðreisn“ Formaður Sjálfstæðisflokksins segir að Ísland endi í aftursætinu gangi það í ESB. Þá ræddi hún einnig um komandi sveitarstjórnarkosningar og efnahagsmálin í ræðu sinni á flokkráðsfundi Sjálfstæðismanna í dag. 21. mars 2026 kl. 15:01ÍÞRÓTTIR Fótbolti Welbeck afgreiddi Liverpool Hans Steinar Bjarnason Liverpool nýtti ekki tækifærið á að komast upp í fjórða sæti ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í dag þegar liðið tapaði 2-1 fyrir Brighton. Danny Welbeck kom Brighton yfir á 13