Maður var handtekinn í gærkvöld eða nótt fyrir að veita öðrum áverka með eggvopni fyrir utan skemmtistað í miðborg Reykjavíkur. Sá sem fyrir varð var fluttur með sjúkrabíl á bráðamóttöku, að því er segir í morgunskeyti lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, en ekki liggur fyrir hversu alvarleg sár hans eru. Fimm gistu fangageymslur í morgun, þeirra á meðal maður sem réðist að öðrum í Háaleitishverfi. Annar var handtekinn við sölu fíkniefna í miðborginni og sá þriðji vegna framleiðslu slíkra efna í Mosfellsbæ. Lögregla tók niður verksmiðjuna og lagði hald á tækjabúnað og framleiðsluna sjálfa. Ökumaður var stöðvaður miðsvæðis í borginni þar sem hann ók á móti umferð undir áhrifum áfengis og fíkniefna. Kona var flutt á bráðamóttöku eftir fall í stiga á skemmtistað í miðborginni líkt og önnur eftir að hún féll fram fyrir sig á götu úti og hlaut andlitsáverka. Enginn slasaðist í umferðaróhappi í Hafnarfirði og lítið tjón varð á farartækjum. Lögreglan fjarlægði skráningarnúmer tíu ökutækja, ýmist vegna skorts á tryggingum eða vanrækslu á aðalskoðun.