Allt útlit er fyrir æsispennandi kosningar í Danmörku á þriðjudaginn. Moeraterne, miðjuflokkur Lars Løkke Rasmussen utanríkisráðherra, verður líklega í lykilstöðu Ekki er mikill munur á hægri og vinstri blokkunum svokölluðu, samkvæmt könnun danska ríkisútvarpsins, DR, sem gefin var út í morgun. Þó er ljóst að samsteypustjórn Mette Frederiksen sem teygir sig milli blokka og samanstendur af Jafnaðarmönnum, Venstre og Moderaterne á litla möguleika á að halda völdum, enda mælast þeir samtals með 61 þingsæti, en 90 sæti þarf til að mynda meirihluta. Jafnaðarmannaflokkurinn mælist langstærstur með 20 prósenta fylgi og 34 þingmenn en missa sextán þingmenn frá síðustu kosningum 2022. Sósíalíski þjóðarflokkurinn kemur næstur með 22 þingmenn og bætir við sig. Þar á eftir koma þrír flokkar af hægri vængnum Bandalag frjálslyndra, Þjóðarflokkurinn og Venstre. Þeir tveir fyrrnefndu bæta við sig en Venstre, sem hefur jafnan verið í forystu í bláu blokkinni, gefur verulega eftir og mælist aðeins með 15 þingmenn. Troels Lund Poulsen, varnarmálaráðherra og formaður Venstre, er þó vígreifur og stendur fast á því að hann sé forsætisráðherraefni bláu blokkarinnar þrátt fyrir allt. Fari kosningarnar á svipaðan veg og þessi könnun gerir ráð fyrir munu Moderaterne og Lars Løkke standa með pálmann í höndunum daginn eftir kjördag. Þeim er spáð 12 þingsætum, fjórum færri en síðast, en engu að síður væri erfitt að mynda stjórn án þeirra.