Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

„Útivistin er það eina sem á að víkja“

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 23.3.2026 | 9:56 „Útivistin er það eina sem á að víkja“ Veitur hyggjast girða af frá almenningi 34 hektara af skógi vegna vatnsverndar á meðan nýtt íbúðahverfi í næsta nágrenni er í hönnun. mbl.is/Anton Brink Óskar Bergsson [email protected] Setja bókamerki „Það eina sem virðist eiga að víkja vegna vatnsbólanna í Heiðmörk er útivistin og hér fer ekki saman hljóð og mynd. Það stendur til að girða af frá almenningi 34 hektara af skógi, sem eru að stærð eins og 47 fótboltavellir. Þessi nýja girðing kemur til með að verða 300 metrum frá fyrirhuguðu nýju ellefu þúsund manna hverfi í Vatnsvík við Elliðavatn í landi Kópavogs.“ Þetta segir Auður Kjartansdóttir, framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Reykjavíkur, og vísar þar annars vegar til takmarkana á aðgengi útivistarfólks að friðlandinu og hins vegar fyrirhugaðrar uppbyggingar bæði iðnaðar- og íbúðahverfa sem til stendur á jaðri vatnsverndarsvæðisins. Hún bætir enda við að það sé ekki bara nýtt íbúðahverfi við Vatnsvík sem standi til að byggja heldur sé Reykjavíkurborg að deiliskipuleggja ný iðnaðarhverfi á Hólmsheiði og svo áformi Kópavogur að byggja fimm þúsund manna íbúðahverfi í landi Gunnarshólma. „Það er ekki búið að sannfæra mig um að útivistargestir á fæti séu hættulegri en þyrlur, flugvélar, drónar, iðnaðarhverfi, íbúðahverfi og þjóðbraut sem telur tugi þúsunda bíla á sólarhring. Græn svæði njóta lítillar verndar, eiga fáa talsmenn og þess vegna er kannski of auðvelt að láta þau víkja.“ Áhersla á aðgengi almennings Á nýafstaðinni fagráðstefnu skógræktar sem haldin var á Hellu fór Auður yfir pólitík skógræktar og ræddi meðal annars um ósamræmi sem er í því hvað talið er ógna vatnsvernd í Heiðmörk, svo sem umferð fólks um útivistarsvæðið, á móti sívaxandi bílaumferð um Suðurlandsveg og að skógræktarsvæði verði tekin undir íbúðabyggð eða iðnaðarsvæði. „Skipulagsmál eru á ábyrgð sveitarfélaga og deiliskipulag Heiðmerkur er á ábyrgð Reykjavíkurborgar. Í slíkri vinnu koma að margir hagsmunaaðilar með mismunandi sjónarmið eins og komið hefur fram í ólíkum áherslum Veitna og Skógræktarfélagsins. Skógræktarfélagið hefur með almenningi og frjálsum félagasamtökum ræktað skóg í Heiðmörk á þeim 76 árum sem liðin eru frá því að friðlandið var stofnað og staðið vörð um þá lýðheilsu sem þessir skógar veita. Við munum að sjálfsögðu standa áfram vörð um mikilvægi þess að friðlandið verði aðgengilegt almenningi.“ Skógræktarfélagið er með tvo fulltrúa í deiliskipulagshópnum en nú segir Auður að Reykjavíkurborg haldi þétt að sér spilunum þar sem verið sé að vinna vinnslutillögur sem þau eigi síðan að hafa skoðun á. „Ég veit því ekki hvernig deiliskipulagstillagan kemur til með að líta út en það er fyrirséð að það verða einhverjar takmarkanir á bílaumferð útivistarfólks. Leiðarljós Skógræktarfélagsins er að tryggja aðgengi allra að útivistarsvæðinu og það er alls ekki á færi allra að fara um langan veg fótgangandi í áttina að skóginum eins og hugmyndir voru um. Í jaðri flestra borga heims eru skógrækt, útivist og vatnsvernd keyrð samhliða og það er ósk okkar að svo megi áfram verða í Heiðmörk.“ Sólrún Kristjánsdóttir framkvæmdastjóri Veitna sagði í viðtali við Morgunblaðið nýlega að nýtt hættumat sem unnið var fyrir Veitur gæfi fyrirheit um að hægt yrði að draga úr ýtrustu kröfum Veitna um takmörkun bílaumferðar í Heiðmörk. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » „Útivistin er það eina sem á að víkja“ Ómögulegt að hafa Tudor áfram Emilía og Rafn Íslandsmeistarar innanhúss í tennis Þórunn Sveinsdóttir kvödd í Eyjum Tíu hugmyndir sem auka lífsgæði og bæta lífið á besta aldri Umræðan Veistu svarið? Umboð og ábyrgð í þjóðaratkvæðagreiðslu Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Viðreisn leitar sjálfboðaliða fyrir ESB-kosningu Fjöldi flóða fyrir ofan Neskaupstað Ný verslun opnuð á varnarsvæðinu „Útivistin er það eina sem á að víkja“ Mest lesið Í gær Í vikunni Munu þurfa frá að hverfa á Akureyri Starfsfólk fær engin páskaegg í ár Gular viðvaranir: Stormur og blindbylur Ísland krafið um skýr svör Vara við blindbyl Ný verslun opnuð á varnarsvæðinu Reykjanesbraut og margir vegir á óvissustigi „Virðist pirra Kristrúnu óskaplega“ Vísar ummælum Kristrúnar til föðurhúsanna Fox News fjallar um forræðisdeilu á Íslandi Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Þrjú lúxushús á 33 milljónir Mennirnir báðir íslenskir Göngunum lokað vegna bílveltu Vara við blindbyl Bláskógabyggð kaupir Laugarásjörðina Gul viðvörun fylgir næstu lægð Lúxussnekkjunni meinuð hafnarkoma á Akureyri Fox News fjallar um forræðisdeilu á Íslandi Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Þrjú lúxushús á 33 milljónir Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr „Fundum manninn hálfsturlaðan“ Leiguverð þarf að hækka töluvert Mennirnir báðir íslenskir Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Nýjast á mbl.is » „Útivistin er það eina sem á að víkja“ Ómögulegt að hafa Tudor áfram Emilía og Rafn Íslandsmeistarar innanhúss í tennis Þórunn Sveinsdóttir kvödd í Eyjum Tíu hugmyndir sem auka lífsgæði og bæta lífið á besta aldri Umræðan Veistu svarið? Umboð og ábyrgð í þjóðaratkvæðagreiðslu Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Lilja hvöss: „Hún tekur enga ábyrgð“ Ófært á meðan göngin bíða útboðs Ísland krafið um skýr svör Leggja niður kennslu í einum árgangi Mest lesið Í gær Í vikunni Munu þurfa frá að hverfa á Akureyri Starfsfólk fær engin páskaegg í ár Gular viðvaranir: Stormur og blindbylur Ísland krafið um skýr svör Vara við blindbyl Ný verslun opnuð á varnarsvæðinu Reykjanesbraut og margir vegir á óvissustigi „Virðist pirra Kristrúnu óskaplega“ Vísar ummælum Kristrúnar til föðurhúsanna Fox News fjallar um forræðisdeilu á Íslandi Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Þrjú lúxushús á 33 milljónir Mennirnir báðir íslenskir Göngunum lokað vegna bílveltu Vara við blindbyl Bláskógabyggð kaupir Laugarásjörðina Gul viðvörun fylgir næstu lægð Lúxussnekkjunni meinuð hafnarkoma á Akureyri Fox News fjallar um forræðisdeilu á Íslandi Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Þrjú lúxushús á 33 milljónir Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr „Fundum manninn hálfsturlaðan“ Leiguverð þarf að hækka töluvert Mennirnir báðir íslenskir Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns

Share this article