Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Réttarhöld um stærsta lestarslys í sögu Grikklands

Read Full Article →

Réttarhöld yfir 36 manns hefjast í Grikklandi í dag en fólkið er ákært fyrir að bera ábyrgð á versta lestarslysi í sögu landsins. 57 fórust í árekstri flutningalestar og farþegalestar 28. febrúar 2023. Yfir 350 vitni koma fyrir dóminn, bæði fólk sem lifði slysið af og aðstandendur þeirra sem fórust. Flestir þeirra sem létu lífið voru nemendur á leiðinni heim úr fríi. Á meðal ákærðra eru stöðvarstjórinn sem var á vakt kvöldið sem slysið varð og aðrir fulltrúar járnbrautanna. Lestirnar tvær höfðu farið eftir sömu teinum í meira en tíu mínútur án þess að viðvörunarbjöllur hringdu. Búist er við að réttarhöldin eigi eftir að taka nokkur ár.

Share this article