Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Leikjahönnuður oddviti Sósíalista í Kópavogi

  • What: Social Democratic Party candidate announcement
  • Impact: Local election campaign in Kópavogur
Read Full Article →

Stuðningsfulltrúinn og leikjahönnuðurinn Markús Candi leiðir framboðslista Sósíalistaflokks Íslands í Kópavogi í sveitarstjórnarkosningunum í vor. Í öðru sæti listans er Anna Ceridwen Auðnudóttir, stuðningsfulltrúi og listfræðinemi. Þriðja sætið skipar tölvunarfræðingurinn Marzuk Ingi Lamsiah Svanlaugar. Þetta kemur fram í tilkynningu Sósíalistafélags Kópavogs. Þar segir meðal annars að flokkurinn hyggist beita sér fyrir húsnæðisöryggi og byggingu óhagnaðardrifinna íbúða. Flokkurinn vill jafnframt lækka kostnað við leikskólapláss og tryggja fullt aðgengi fatlaðra og hreyfihamlaðra í allri uppbyggingu bæjarins. Flokksmenn tala einnig fyrir úrbótum á almenningssamgöngum og aukinni aðkomu íbúa að skipulagsmálum bæjarins.

Share this article