Innlent | mbl | 23.3.2026 | 13:40 Óheppileg ummæli lögreglu og ámælisverð hátttsemi Nefndin telur mikilvægt að embættið yfirfari verklag og meti hvort þörf sé á úrbótum svo hægt sé að girða fyrir að sambærilegt atvik eigi sér stað aftur. mbl.is/Eggert Jóhannesson Setja bókamerki Tengdar fréttir Kynferðisbrot Ómerkir dóm Landsréttar í nauðgunarmáli Dæmdur í átta ára fangelsi Réttað yfir manni sem braut gegn stjúpdóttur sinni Ákærður fyrir fjölda brota gegn unglingsstúlku Meintur níðingur í varðhaldi til 3.apríl » Fleiri tengdar fréttir Nefnd um eftirlit með lögreglu telur að starfsmenn embættis lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu hafi viðhaft ámælisverða háttsemi við rannsókn á nauðgun árið 2021. Þá kemur fram í ákvörðun nefndarinnar að hún telji ummæli rannsóknarmanns þar sem hann bað sakborning afsökunar á því að boða hann í skýrslutöku óheppileg. Nefndinni barst erindi um mitt ár 2023 þar sem athugasemdir voru gerðar við starfsaðferðir starfsmanna embættis Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu við rannsókn á tilteknu máli og talið að starfsmenn sem fóru með málið hafi viljandi eyðilagt rannsókn þess. Töfðu málið vegna annars máls Kvörtunin sem kemur frá kvenkyns brotaþola í umræddu nauðgunarmáli sneri að tveimur þáttum. Í fyrsta lagi setti hún út á að lögregla hafi hætt rannsókn málsins þrátt fyrir að hafa upplýsingar um dyraverði sem voru við störf kvöldið sem meint brot átti sér stað. Í ákvörðuninni er ekki skýrt frekar frá hver aðkoma þeirra er að málinu. Ákvörðun lögreglu um að hætta rannsókn málsins var kærð og felldi ríkissaksóknari hana úr gildi einkum á þeim grundvelli að upplýsingarnar um dyraverðina hefðu ekki verið rannsakaðar og mælti fyrir um frekari rannsókn. Kvörtun konunnar, að því er þetta atriði varðar, lýtur að því að hún telji að lögreglan hafi látið hjá líða að upplýsa mál hennar vegna þess að lögreglan hafi á sama tíma verið að byggja upp mál sem hafi tengst ætluðum afbrotum annars dyravarðanna. Fengu þetta í hausinn frá ríkissaksóknara Í öðru lagi kvartaði konan yfir háttsemi tiltekins rannsóknarlögreglumanns við framkvæmd á skýrslutöku á sakborningi í málinu. Hún tók fram að lögreglumaðurinn hafi beðið sakborning afsökunar á að hafa þurft að kalla hann í skýrslutöku og sagt honum að lögreglan „hafi fengið þetta í hausinn frá ríkissaksóknara og [þurft] að klára örfá atriði“. Lögreglumaðurinn hafi þá ekki gert athugasemd við að sakborningur hafi beðið um nafn og heimilisfang brotaþolans en hún telur að þeim orðum hafi lögreglumaðurinn átt að taka sem hótun. Loks gerði kvartandi athugasemdir við að sakborningurinn hafi nánast fengið sjálfur að sjá um skýrslutökuna. Verulegur dráttur á rannsókn Í ákvörðun nefndar um eftirlit með lögreglu kemur fram að hún telji að ummæli lögreglumannsins við skýrslutöku hafi verið óheppileg og ekki í samræmi við fagleg og vönduð vinnubrögð en telur ekki tilefni til að aðhafast frekar vegna þeirra. Hins vegar telur nefndin að starfsmenn embættisins hafi viðhaft ámælisverðar starfsaðferðir þegar embættið lét hjá líða að sinna lögmæltu hlutverki sínu við upphaf rannsóknar, þ.e. að vinna að uppljóstrun málsins. „Þrátt fyrir að rannsókn málsins hafi verið tekin upp að nýju eftir að niðurstaða ríkissaksóknara lá fyrir þann 31. mars 2021 er ljóst að verulegur dráttur varð á rannsókn málsins og skýrslutökur af meintum sakborningi og vitnum fóru ekki fram fyrr en rúmum tveimur árum eftir meint brot,“ segir í ákvörðuninni. Nefndin telur mikilvægt að embættið yfirfari verklag og meti hvort þörf sé á úrbótum svo hægt sé að girða fyrir að sambærilegt atvik eigi sér stað aftur. Tengdar fréttir Kynferðisbrot Ómerkir dóm Landsréttar í nauðgunarmáli Dæmdur í átta ára fangelsi Réttað yfir manni sem braut gegn stjúpdóttur sinni Ákærður fyrir fjölda brota gegn unglingsstúlku Meintur níðingur í varðhaldi til 3.apríl » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Reykjanesbraut and many roads on uncertainty alert Haldið í gíslingu í 63 klukkustundir Óheppileg ummæli lögreglu og ámælisverð hátttsemi „Þetta hefði alls ekki þurft að fara svona“ Vonast til að Alfreð verði áfram Umræðan Veistu svarið? Umboð og ábyrgð í þjóðaratkvæðagreiðslu Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Erum hægt og bítandi að ná utan um þetta“ Ófært á meðan göngin bíða útboðs Ísland krafið um skýr svör Kannast ekki við yfirlýsingar Trumps Mest lesið Í gær Í vikunni Munu þurfa frá að hverfa á Akureyri Starfsfólk fær engin páskaegg í ár Gular viðvaranir: Stormur og blindbylur Ísland krafið um skýr svör Vara við blindbyl Ný verslun opnuð á varnarsvæðinu Áttu 6-8 stundir í land þegar Gæslan greip inn í Reykjanesbraut og margir vegir á óvissustigi „Virðist pirra Kristrúnu óskaplega“ Vegir til og frá höfuðborgarsvæðinu geta lokast Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Þrjú lúxushús á 33 milljónir Mennirnir báðir íslenskir Göngunum lokað vegna bílveltu Vara við blindbyl Bláskógabyggð kaupir Laugarásjörðina Gul viðvörun fylgir næstu lægð Lúxussnekkjunni meinuð hafnarkoma á Akureyri Fox News fjallar um forræðisdeilu á Íslandi Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Þrjú lúxushús á 33 milljónir Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr „Fundum manninn hálfsturlaðan“ Vara við blindbyl Leiguverð þarf að hækka töluvert Mennirnir báðir íslenskir Nýjast á mbl.is » Reykjanesbraut and many roads on uncertainty alert Haldið í gíslingu í 63 klukkustundir Óheppileg ummæli lögreglu og ámælisverð hátttsemi „Þetta hefði alls ekki þurft að fara svona“ Vonast til að Alfreð verði áfram Umræðan Veistu svarið? Umboð og ábyrgð í þjóðaratkvæðagreiðslu Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Óheppileg ummæli lögreglu og ámælisverð hátttsemi Áttu 6-8 stundir í land þegar Gæslan greip inn í Trump frestar fyrirhuguðum árásum á Íran Ófært á meðan göngin bíða útboðs Mest lesið Í gær Í vikunni Munu þurfa frá að hverfa á Akureyri Starfsfólk fær engin páskaegg í ár Gular viðvaranir: Stormur og blindbylur Ísland krafið um skýr svör Vara við blindbyl Ný verslun opnuð á varnarsvæðinu Áttu 6-8 stundir í land þegar Gæslan greip inn í Reykjanesbraut og margir vegir á óvissustigi „Virðist pirra Kristrúnu óskaplega“ Vegir til og frá höfuðborgarsvæðinu geta lokast Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Þrjú lúxushús á 33 milljónir Mennirnir báðir íslenskir Göngunum lokað vegna bílveltu Vara við blindbyl Bláskógabyggð kaupir Laugarásjörðina Gul viðvörun fylgir næstu lægð Lúxussnekkjunni meinuð hafnarkoma á Akureyri Fox News fjallar um forræðisdeilu á Íslandi Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Þrjú lúxushús á 33 milljónir Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr „Fundum manninn hálfsturlaðan“ Vara við blindbyl Leiguverð þarf að hækka töluvert Mennirnir báðir íslenskir