Security News

Cybersecurity news aggregator

HIGH Attacks RÚV

Saka Rússa um að beina árásum að almennum borgurum

This article describes a kinetic military threat, not a software vulnerability, detailing a deliberate Russian drone and missile campaign targeting Ukrainian civilian infrastructure. The attack vector involves the use of at least 390 drones and 34 missiles against urban areas, resulting in significant civilian casualties. As this is a geopolitical conflict report, it contains no technical vulnerability details such as CVSS scores, affected software versions, patches, or workarounds.
Read Full Article →

Slökkviliðsmenn reyna að slökkva eld í fjölbýlishúsi í Zaporizhzhia sem varð fyrir drónaárás í nótt.AP / Kateryna Klochko Fimm voru drepnir og á þriðja tug særðust í árásum Rússa á Úkraínu í nótt. Andriy Sybiga, utanríkisráðherra Úkraínu, sakar Rússlandsher um að hafa beint árásum sínum að almennum borgurum að ásettu ráði. Stjórnvöld í Kænugarði saka Rússa um að hafa beint 390 drónum og 34 flugskeytum gegn landinu í árásinni sem er sú umfangsmesta um nokkurra vikna skeið. Stríðið í Mið-Austurlöndum hefur sett friðarviðræður úr skorðum en Bandaríkin hafa haft þar milligöngu. Sendinefnd frá Kænugarði hélt til Bandaríkjanna um helgina til að reyna að blása nýju lífi í viðræðurnar en án teljandi árangurs.

Share this article