Innlent | mbl | 24.3.2026 | 11:00 Starfsfólk sé ekki eitt með barni Mótun nýs forvarnarverkferils felur í sér leiðbeiningar um að þekkja vísbendingar um mögulegt ofbeldi og hvaða skref skuli stíga í framhaldinu. Ljósmynd/Colourbox Magnea Marín Halldórsdóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Starfsmaður á Múlaborg grunaður um brot Fer fram á frekari rannsókn í máli þriggja barna Gert að rannsaka mál tveggja barna af Múlaborg betur Játaði að hafa tvisvar brotið gegn stúlkunni 130 milljónir í sex ráðgjafa og einn leiðtoga Tjáði Múlaborg áhyggjur sínar ári fyrir handtökuna » Fleiri tengdar fréttir Aukin fræðsla fyrir starfsfólk, betri þekking á vísbendingum um mögulegt ofbeldi, að starfsfólk sé ekki eitt með barni í lokuðu rými, styrking ráðningarferla, atvikaskráning í skjalakerfi borgarinnar, fjölgun mannauðsráðgjafa og skipun leiðtoga vinnuverndar eru meðal þeirra úrbóta sem Reykjavíkurborg vinnur nú að eftir greiningu á starfi skóla- og frístundasviðs. Þetta kemur fram í svari Hjördísar Rutar Sigurjónsdóttur, upplýsingafulltrúa skóla- og frístundasviðs, við fyrirspurn mbl.is. Tilefnið er meint brot fyrrverandi starfsmanns leikskólans Múlaborgar gegn börnum á leikskólanum. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði til rannsóknar grun um brot gegn tíu börnum hið minnsta. Þar af voru þrjú mál send til ákærusviðs héraðssaksóknara en aðeins eitt þeirra leiddi til ákæru. Embætti ríkissaksóknara bárust alls sex kærur vegna meintra brota fyrrverandi starfsmannsins. Ríkissaksóknari hefur fellt úr gildi ákvarðanir lögreglu eða héraðssaksóknara í þremur málum og farið fram á frekari rannsókn. Frétt af mbl.is Fer fram á frekari rannsókn í máli þriggja barna Samráð við yfirvöld Í svari Hjördísar segir að borgin starfi eftir verkferli um viðbrögð við meintri óviðeigandi framkomu starfsmanns gagnvart barni í öllum starfsstöðvum skóla- og frístundasviðs. Því sé ætlað að tryggja rétt og skjót viðbrögð og að samráð sé haft við viðeigandi fagaðila og yfirvöld þegar það á við. Þar að auki sé nú unnið að frekari úrbótum í ljósi heildstæðrar greiningar á ferlum og verklagi skóla- og frístundasviðs: Endurskoðun á núverandi verkferlum um viðbrögð við meintri óviðeigandi framkomu til að tryggja skýrari ferla og aukna fræðslu meðal stjórnenda og starfsfólks. Mótun nýs forvarnarverkferils fyrir alla starfsstaði, sem m.a. felur í sér leiðbeiningar um að þekkja vísbendingar um mögulegt ofbeldi og hvaða skref skuli stíga í framhaldinu. Áhersla á að starfsfólk forðist að vera eitt með barni í lokuðu rými um lengri tíma. Stofnun þverfaglegs fagteymis sem mun halda utan um innleiðingu og eftirfylgni verklags. Styrkingu nýliða- og ráðningarferla, m.a. varðandi hæfnikröfur, upplýsingaöflun úr sakaskrá og markvissa móttöku nýrra starfsmanna. Innleiðingu atvikaskráningar í skjalakerfi borgarinnar til að tryggja trausta skráningu og rekjanleika. Fjölgun mannauðsráðgjafa og skipun leiðtoga vinnuverndar fyrir sviðið, í samræmi við öryggisstefnu borgarinnar. Lagaleg skylda starfsfólks Með ofangreindum aðgerðum segir Hjördís markmiðið vera að efla öryggis- og verndarkerfi skóla- og frístundasviðs og tryggja að öll mál séu afgreidd með gagnsæjum og faglegum hætti. Allt starf á sviði skóla- og frístundamála byggi á ákvæðum laga um leikskóla og aðalnámskrá leikskóla sem leggi skýra áherslu á velferð, vernd og réttindi barna. Starfsfólk beri faglega og lagalega skyldu til að tryggja öryggi barna og bregðast strax við ef grunur vaknar um óviðeigandi háttsemi. Tengdar fréttir Starfsmaður á Múlaborg grunaður um brot Fer fram á frekari rannsókn í máli þriggja barna Gert að rannsaka mál tveggja barna af Múlaborg betur Játaði að hafa tvisvar brotið gegn stúlkunni 130 milljónir í sex ráðgjafa og einn leiðtoga Tjáði Múlaborg áhyggjur sínar ári fyrir handtökuna » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Úr Grafarvoginum í Kópavoginn Undirbúningur á lokametrunum átta árum síðar Lést nokkrum dögum eftir 22 ára afmælið Starfsfólk sé ekki eitt með barni Fyrrverandi Jessi Draper þarf að fá vernd frá henni Umræðan Tryggjum jafnræði í grunnskólunum Við höfum ekki tekið upp 80% af regluverki ESB Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Skjálfti af stærðinni 2,5 við Eldey Sá stærsti í hálft ár Segir fjáraukalög hafa verið brotin Hátt í 100 björgunarsveitarmenn kallaðir út Mest lesið Í gær Í vikunni Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Seinheppnir Bretar hrósa áhöfn Icelandair Getur hæglega endað með gosi Fluttur á sjúkrahús vegna ofkælingar Andlát: Pétur Marteinn Páll Urbancic „Kommissarinn“ íslenskur „Ég er harmi slegin“ Bílar innlyksa vegna snjóflóðs Sjúkrabíl fylgt frá Egilsstöðum til Akureyrar Ein með öllu og kók komin í 1.330 krónur „Ég er harmi slegin“ Munu þurfa frá að hverfa á Akureyri Starfsfólk fær engin páskaegg í ár Gular viðvaranir: Stormur og blindbylur Ísland krafið um skýr svör Vilja hætta að rukka á kvöldin Vara við blindbyl Áttu 6-8 stundir í land þegar Gæslan greip inn í Ný verslun opnuð á varnarsvæðinu Slæmt skyggni og vegir víða lokaðir Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu „Ég er harmi slegin“ Þrjú lúxushús á 33 milljónir Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Vara við blindbyl „Fundum manninn hálfsturlaðan“ Munu þurfa frá að hverfa á Akureyri Nýjast á mbl.is » Úr Grafarvoginum í Kópavoginn Undirbúningur á lokametrunum átta árum síðar Lést nokkrum dögum eftir 22 ára afmælið Starfsfólk sé ekki eitt með barni Fyrrverandi Jessi Draper þarf að fá vernd frá henni Umræðan Tryggjum jafnræði í grunnskólunum Við höfum ekki tekið upp 80% af regluverki ESB Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Gerðu drónaárás skammt frá Finnlandi Starfsfólk sé ekki eitt með barni Óvissustig vegna hugsanlegrar snjóflóðhættu Segir fjáraukalög hafa verið brotin Mest lesið Í gær Í vikunni Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Seinheppnir Bretar hrósa áhöfn Icelandair Getur hæglega endað með gosi Fluttur á sjúkrahús vegna ofkælingar Andlát: Pétur Marteinn Páll Urbancic „Kommissarinn“ íslenskur „Ég er harmi slegin“ Bílar innlyksa vegna snjóflóðs Sjúkrabíl fylgt frá Egilsstöðum til Akureyrar Ein með öllu og kók komin í 1.330 krónur „Ég er harmi slegin“ Munu þurfa frá að hverfa á Akureyri Starfsfólk fær engin páskaegg í ár Gular viðvaranir: Stormur og blindbylur Ísland krafið um skýr svör Vilja hætta að rukka á kvöldin Vara við blindbyl Áttu 6-8 stundir í land þegar Gæslan greip inn í Ný verslun opnuð á varnarsvæðinu Slæmt skyggni og vegir víða lokaðir Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu „Ég er harmi slegin“ Þrjú lúxushús á 33 milljónir Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Vara við blindbyl „Fundum manninn hálfsturlaðan“ Munu þurfa frá að hverfa á Akureyri