Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Varað við lúmskri hálku undir snjó

Read Full Article →

Fjöldi fólks hefur leitað til læknis eftir hálkuslys í dag á Akureyri. Á bráðamóttöku Sjúkrahússins á Akureyri var nóg að gera í morgun. Nokkuð er um að fólk slasi sig í færðinni, þar á meðal að það hafi handleggs- eða fótbrotnað. Mynd af bíl á ferð niður Oddeyrargötu á Akureyri. Mikill snjór er á götum.RÚV / Ólöf Rún Erlendsdóttir Lögreglan á Akureyri aðstoðaði bæði gangandi og akandi vegfarendur í morgun. Nokkuð er um að ökumenn festi bíla innanbæjar og tveimur var ekið á bráðamóttöku eftir að hafa dottið í hálkunni. Norðanlands hefur snjóað mikið síðasta sólarhringinn og undir snjónum er víða flughált undirlag. Vegfarendur ættu því að fara með gát - það gæti verið meiri hálka en það virðist. Mynd af snjódýpt á Akureyri í mars 2026. Hálka er undir snjónum.RÚV / Ólöf Rún Erlendsdóttir

Share this article