Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
LOW News RÚV

Fylgdarakstur yfir Fagradal um kvöldmatarleytið

  • What: Snow and traffic restrictions in Iceland
  • Impact: Road closures and traffic control due to snowfall
Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 7 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Austurland Fylgd­ar­akst­ur yfir Fagra­dal um kvöld­mat­ar­leyt­ið Hugrún Hannesdóttir Diego Fylgdarakstur verður yfir Fagradal, frá Reyðarfirði klukkan 18:00 og frá Egilsstöðum klukka 19:00. Þetta kemur fram á vef Vegagerðarinnar, Umferðin.is. Vegurinn um Fagradal er lokaður vegna snjóflóðahættu og verður honum lokað aftur að fylgdarakstri loknum. Hann verður svo ekki opnaður aftur í kvöld. Fylgdarakstur fer þannig fram að mokstursbíll fylgir umferð frá lokunarhliðum yfir heiðina. Umferð er óheimil nema í fylgd fyrrgreindrar bifreiðar. Mikil snjóþyngsli eru á Austurlandi. Myndin er tekin á Seyðisfirði. Skjáskot / RÚV Fyrir 3 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Óttast að oftar þurfi að hverfa frá Ak­ur­eyr­ar­flug­velli í slæmu skyggni Forsvarsmenn Norlandair hafa áhyggjur af því að ratsjá hafi verið tekin úr notkun á Akureyrarflugvelli, sem gat nýst vel í slæmu skyggni. Samgöngustofa segir ratsjánna ekki standast nútímakröfur. Fyrir 9 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Leikskólar „Auð­vit­að var maður í sjokki og fer að hugsa: Ætli mitt barn hafi lent í honum?“ Móðir barns á leikskólanum Tröllaborgum á Akureyri segist fyrst hafa heyrt af rannsókn lögreglu á óviðeigandi framkomu starfsmanns gagnvart barni fyrir einu og hálfu ári í tölvupósti frá Akureyrarbæ á föstudag. Hún segir mikla reiði meðal foreldra. Fyrir 14 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Þýskaland Tvö hand­tek­in vegna gruns um njósn­ir fyrir Rússa Karl og kona eru grunuð um að hafa njósnað um mann sem útvegaði Úkraínumönnum litla árásardróna. Rannsakendur telja að til hafi staðið að valda manninum skaða. Fyrir 23 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Austurland Allt á kafi í snjó á Seyð­is­firði Hættustig vegna snjóflóða er enn í gildi á Seyðisfirði. Um tíu manns yfirgáfu heimili sín í gær vegna snjóflóðahættu. Flestir fjallvegir á austanverðu landinu eru lokaðir. Fyrir 47 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Evrópusambandið Svona er ferlið ef þjóðin sam­þykk­ir að „kíkja í pakk­ann“ Landsmenn þyrftu minnst tvívegis aftur í kjörklefann fari svo að samþykkt verði að halda aðildarviðræðum við Evrópusambandið áfram í þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst. Hér er útskýrt hvaða ferli myndi taka við. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Menntamál Sex sóttu um starf skóla­stjóra í Grinda­vík Sex sóttu um lausa stöðu skólastjóra við nýjan samrekinn leik- og grunnskóla í Grindavík. Umsóknarfrestur rann út 16. mars. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Um­ferð­ar­stýr­ing á Reykja­nesi, Snæ­fells­nesi og Vest­fjörð­um þegar al­myrkvi verður á sólu Til að tryggja greiða leið viðbragðsaðila og auðvelda flæði umferðar gerir Vegagerðin ráð fyrir umferðarstýringu á ákveðnum vegum á vesturhluta landsins 12. ágúst. Búist er við mikilli umferð vegna almyrkva á sólu. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Vinstr­ið til­kynn­ir fram­boð í Hafn­ar­firði Vor til Vinstri og VG í Hafnarfirði tefla fram sameiginlegu framboði til sveitarstjórnarkosninganna í vor. Framboðið nefnist Vinstrið í Hafnarfirði. Ester Bíbí Ásgeirsdóttir leiðir listann. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Danmörk Helm­ing­ur Dana búinn að kjósa Grétar Þór Sigurðsson Frá kjörstað í ráðhúsi Kaupmannahafnar. AP / Sergei Grits Rétt rúmlega helmingur Dana er búinn að skila atkvæði sínu í kjörkassann. Þetta kemur fram í fréttavakt DR þar sem fylgst er með dönsku þingkosningunum. Kjörsóknin það sem af er degi er litlu meiri nú en í síðustu kosningum 2022. Þess ber þó að geta að inni í þessum tölum eru póstatkvæði sem eru öllu fleiri nú en í síðustu kosningum. Sérfræðingar telja að kjörsókn verði ívið lakari nú en fyrir fjórum árum. Kjörstaðir loka í Danmörku klukkan 7 að íslenskum tíma og þá verður gefin út útgönguspá. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Vestfirðir Fjar­skipta­trufl­an­ir í Ísa­fjarð­ar­djúpi vegna bruna í end­ur­varps­stöð Fjarskiptatruflanir urðu í Ísafjarðadjúpi þegar endurvarpsstöð brann um helgina. Illa hefur gengið að hefja viðgerðir vegna vonskuveðurs og ófærðar. Rekstrarstjóri hjá Neyðarlínunni segir stefnt að því að koma öllum fjarskiptum í gagnið á morgun. Fyrir 2 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Menntamál Komast ein­fald­lega ekki inn Án aðgerða í íslensku menntakerfi gæti skortur á vinnuafli á sviði mannvirkjagerðar valdið minni uppbyggingu og töfum á framkvæmdum sem draga úr samkeppnishæfni atvinnulífsins. Fleiri hundruð umsækjendum hefur verið vísað frá iðnnámi undanfarin ár. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Danmörk Hætta við leið­toga­um­ræð­ur á kosn­inga­nótt Grétar Þór Sigurðsson Flokksleiðtogar ræða saman að loknum lokakappræðum í gærkvöld. EPA / Mads Claus Rasmussen Ekkert verður af sjónvarpsumræðum danskra flokksleiðtoga á DR og TV2 í Kristjánsborgarhöll á kosninganótt eftir að tíu af tólf flokkum afboðuðu sig. Þátturinn átti að vera á dagskrá klukkan eitt eftir miðnætti. Í sameiginlegri yfirlýsingu flokkanna tíu segir að umræðurnar séu óþarfar, ekki síst í ljósi þess að búið er að boða til umræðna fyrir hádegi á morgun. Troels Lund Poulsen leiðtogi Venstre segir við DR lítið vit í að sjónvarpa umræðuþætti þegar flestir Danir eru í fastasvefni. Mette Frederiksen forsætisráðherra og leiðtogi Jafnaðarmanna segir flokksleiðtogana nú þegar búna að verja dágóðum tíma í umræðuþætti í kosningabaráttunni. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Akureyrarbær Varað við lúm­skri hálku undir snjó Ólöf Rún Erlendsdóttir Fjöldi fólks hefur leitað til læknis eftir hálkuslys í dag á Akureyri. Á bráðamóttöku Sjúkrahússins á Akureyri var nóg að gera í morgun. Nokkuð er um að fólk slasi sig í færðinni, þar á meðal að það hafi handleggs- eða fótbrotnað. Mynd af bíl á ferð niður Oddeyrargötu á Akureyri. Mikill snjór er á götum. RÚV / Ólöf Rún Erlendsdóttir Lögreglan á Akureyri aðstoðaði bæði gangandi og akandi vegfarendur í morgun. Nokkuð er um að ökumenn festi bíla innanbæjar og tveimur var ekið á bráðamóttöku eftir að hafa dottið í hálkunni. Norðanlands hefur snjóað mikið síðasta sólarhringinn og undir snjónum er víða flughált undirlag. Vegfarendur ættu því að fara með gát - það gæti verið meiri hálka en það virðist. Mynd af snjódýpt á Akureyri í mars 2026. Hálka er undir snjónum. RÚV / Ólöf Rún Erlendsdóttir Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Kúba „Þeir hafa verið í bar­áttu og eru vanir því að berj­ast og standa saman“ Eyjólfur B. Eyvindarson, betur þekktur sem Sesar A., er staddur á Kúbu ásamt hundruðum annarra sem færa mannúðaraðstoð til landsins. Víða varð rafmagnslaust á Kúbu um helgina en Sesar segir Kúbverja ýmsu vana. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Ungverjaland Við­ur­kenn­ir að eiga í reglu­leg­um sam­skipt­um við Lavrov á fundum ESB Utanríkisráðherra Ungverjalands sagði fréttaflutning Washington Post um samskipti sín við utanríkisráðherra Rússlands vera falsfréttir. Hann hefur gengist við því að ræða við starfsbróður sinn um efni lokaðra funda en segir engar reglur vera brotnar. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Velferðarmál Lýsir of­beldi á fóst­ur­heim­ili í Mos­fells­sveit: „Þá ertu komin í hlið heljar“ Kona sem dvaldi sem barn á fósturheimili í Mosfellssveit á áttunda áratugnum segir vistina þar hafa verið skelfilega. Hún vill að rannsóknarnefnd taki fósturheimilið fyrir. Guðrún Glódís lýsir kynferðisofbeldi, barsmíðum og svelti. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Rým­ing­ar enn í gildi og beðið eftir betra skyggni til fjalla Veðurstofan hefur ekki enn getað metið hvort hægt sé að aflýsa hættustigi á Seyðisfirði því lítið skyggni er til fjalla. Tíu manns yfirgáfu heimili sín í gær í varúðarskyni vegna mikillar snjókomuspár. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Húsnæðismál Stofna fyrsta óhagn­að­ar­drifna hús­næð­is­fé­lag­ið fyrir há­skóla­mennt­aða Óhagnaðardrifið húsnæðisfélag hefur verið stofnað af stéttarfélögum háskólamenntaðra í fyrsta sinn. Formaður Visku segir það misskilning að háskólamenntaðir þurfi ekki aðstoð. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Ísra­els­her her­tek­ur land­svæði í suð­ur­hluta Líban­ons Varnarmálaráðherra Ísraels segir hundruð þúsunda Líbana sem búa sunnan við ána Litani ekki fá að snúa aftur til síns heima fyrr en öryggi íbúa í norðurhluta Ísraels sé tryggt. Áin er um 30 kílómetra frá landamærum ríkjanna tveggja. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Efnahagsmál Ekki til skoð­un­ar að lækka skatta á elds­neyti Ekki stendur til að fara að dæmi spænskra stjórnvalda og lækka gjöld á eldsneyti vegna snarhækkaðs heimsmarkaðsverðs, segir fjármálaráðherra. Fyrir 5 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Þessi lið mætast í 32-liða úr­slit­um Dregið var í 32-liða úrslit bikarkeppni karla í fótbolta rétt í þessu. Þrír Bestu deildar-slagir eru fram undan. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Jarðhræringar á Reykjanesskaga Á þriðja hund­rað skjálfta á Reykja­nes­hrygg Um 280 skjálftar hafa mælst á Reykjaneshrygg síðasta sólarhring. Náttúruvársérfræðingur segir skjálftahrinurnar tilkomnar vegna flekahreyfinga. Ekki sé ástæða til að telja að þær bendi til eldgoss. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Átta ákærð­ir vegna kóka­ín­smygls Smygl á 2,6 kílóum af kókaíni í nóvember leiddi til þess að átta menn voru ákærðir. Hver um sig er sagður hafa leikið hlutverk í smyglinu og mótttöku fíkniefnanna. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Danmörk Öryggi Dana og efna­hags­mál kjós­end­um of­ar­lega í huga Efnahagslegt sjálfstæði, öryggi og minni íslamsvæðing, ríkisstjórn sem stuðlar að framþróun. Þetta er á meðal þeirra atriða sem danskir kjósendur sem fréttastofa ræddi vilja að ný ríkisstjórn landsins leggi áherslu á. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Hafa ekki áhyggj­ur af að Kín­verj­ar geti stöðv­að strætó Forsvarsmenn Strætó telja litla hættu stafa af notkun kínverskra Yutong-strætisvagna þrátt fyrir möguleg inngrip frá Kína. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Vesturland Ástand á vegum versn­ar ár frá ári Umhleypingar í veðri á Vesturlandi síðustu vikur hafa slæm áhrif á ástand vega, segir svæðisstjóri Vegagerðarinnar. Margir vegir eru komnir til ára sinna og endurnýjunar er þörf. Fyrir 7 tímumINNLEN

Share this article