Lögreglan í Þýskalandi og á Spáni hafer handtekið karl og konu sem grunuð eru um að hafa stundað njósnir í Þýskalandi fyrir Rússa. Þjóðverjar eru á meðal dyggustu stuðningsmanna Úkraínu í stríði landsins við Rússland. Því gruna yfirvöld að njósnir, skemmdarverk og upplýsingahernaður af hálfu Rússa hafi aukist þar í landi umtalsvert allt frá því stríðið hófst 2022. Yfirvöld í Þýskalandi hafa að undanförnu varað við því að Rússar reyni í auknum mæli að verða sér úti um svokallaða „einnota útsendara“ sem ætlað er að sinna njósnum og skemmdarverkum. Fólk sem hafi engan bakgrunn eða þjálfun í njósnastarfsemi sé ráðið í gegnum samfélagsmiðla til að framkvæma verkefni á borð við íkveikjur, skemmdarverk og njósnir í skiptum fyrir peninga. Tóku upp myndskeið af manni sem útvegaði Úkraínuher ásárdróna Í þetta sinn var úkraínskur ríkisborgari sem kallaður er Sergey N. og rúmönsk kona sem kölluð er Alla S. sem grunuð eru um að hafa njósnað um mann sem útvegaði Úkraínuher litla árásardróna og íhluti. Í tilkynningu saksóknara segir að Sergey N. hafi tekið upp myndskeið af vinnustað mannsins og safnað upplýsingum um hann. Það hafi hann gert frá því í desember. Eftir að Sergey N flutti til Spánar hafi Alla S. tekið við verkefninu. Hún hafi meðal annars tekið upp myndskeið af heimili mannsins. Talið að til hafi staðið að valda manninum skaða Saksóknarar telja að myndbandsupptökurnar hafi verið gerðar til þess að ráðast í frekari aðgerðir gegn manninum. Þýski fjölmiðillinn Der Speigel segir að rannsakendur gruni að til hafi staðið að valda manninum skaða og jafnvel ráða hann af dögum. Alla S. verður leidd fyrir dómara á morgun en Sergey N. þegar búið er að flytja hann frá Spáni, þar sem hann var handtekinn.
German and Spanish authorities arrested two individuals suspected of conducting espionage in Germany on behalf of Russia, targeting a supplier of small attack drones to the Ukrainian military. The suspects, a Ukrainian and a Romanian citizen, allegedly conducted surveillance by filming the target's workplace and residence, with the intent to facilitate sabotage or physical harm. This case highlights Russia's increased use of "single-use agents" recruited via social media to perform sabotage, arson, and espionage for financial gain.