- What: Severe snow and avalanche warnings in Iceland
- Impact: Evacuations and road closures due to snowfall
Hættustig vegna snjóflóðahættu hefur verið í gildi á Seyðisfirði síðan í gær. Þá voru hús rýmd og tíu manns þurftu að yfirgefa heimili sín. Fjarðarheiði er enn lokuð sem og flestir fjallvegir á austanverðu landinu. Magni Hreinn Jónsson, ofanflóðasérfræðingur á Veðurstofu Íslands, segist vona að hægt verði að fella rýmingar úr gildi í dag en það verði aðeins gert ef létti til. „Það eru rýmingar í gildi á Seyðisfirði og óvissustig á Austfjörðum vegna snjóflóðahættu. Veðrið hefur mikið lagast frá því að það var sem verst í nótt en það hefur verið éljagangur og snjókoma í dag og blint til fjalla,“ segir Magni Hreinn. „Við höfum viljað fá fjallasýn til þess að meta aðstæður og þá vonandi að hægt sé að aflétta þessum viðbúnaði í kjölfarið, en það hefur látið bíða eftir sér þetta skyggni.“