Bandaríska flugfélagið United Airlines hefur beint flug milli Keflavíkurflugvallar og Chicago á vetraráætlun sinni 2026/2027. Fyrsta koma sumarsins verður 13. maí næstkomandi og verður fluginu áframhaldið til byrjunar janúar 2027. Sala á ferðum hefst á föstudaginn og flogið verður þrisvar í viku milli Keflavíkur og Chicago yfir veturinn á Boeing 737 Max 8-vélum United Airlines en daglegt flug verður í boði í sumar sem áður hafði verið tilkynnt. „Þetta er í fyrsta sinn síðan 2018, þ.e. fyrir heimsfaraldurinn, sem bandarískt flugfélag hefur áætlunarflug til og frá Keflavíkurflugvelli á vetraráætlun sinni. Við höfum á síðustu árum átt afskaplega farsælt og gott samstarf við United Airlines. Það hefur lengi verið verkefni hjá okkur á KEF að fá flugfélag frá Norður-Ameríku til að fljúga til og frá vellinum að vetri,“ segir Grétar Már Garðarsson, forstöðumaður flugfélaga og markaðsmála á KEF. Sjá einnig United Airlines tengir nú þrjár borgir við Ísland United Airlines hóf flug milli Keflavíkur og New York/Newark í maí 2018 og bætti við Chicago sem áfangastað sumarið 2021. Félagið er með beint flug frá Chicago og New York/Newark til Keflavíkur næsta sumar og hefur einnig tilkynnt um flug milli Íslands og Washington sem hefst sumarið 2026.