Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Segja Bandaríkjamenn eiga í samningaviðræðum við sjálfa sig

Read Full Article →

Sendiherra Írans í Pakistan segir engar samningaviðræður milli Bandaríkjanna og Írans hafa átt sér stað, hvorki með beinum eða óbeinum hætti. Þetta hefur íranski ríkismiðillinn IRNA eftir sendiherranum Reza Amiri Moghadam. Donald Trump Bandaríkjaforseti sendi friðaráætlun í 15 liðum til íranskra stjórnvalda í gær. Stjórnvöld í Pakistan sem hafa boðist til að miðla málum segja friðaráætlunina hafa borist Írönum. Segir Írana þrá að semja Við formlega skipun Markwayne Mullin í embætti heimavarnarráðherra í gær sagði Trump að bandarísk stjórnvöld ættu í viðræðum við „rétta fólkið“ í Íran. Það „þrái að semja,“ eins og Trump orðaði það. Ebrahim Zolfaghari, talsmaður Íranshers, sagði í myndbandsávarpi sem hann sendi írönskum fjölmiðlum í dag að „tiltekið sjálfskipað stórveldi“ ætti ekki að tala um ósigur sinn sem samkomulag og spurði hvort það væri farið að eiga í samningaviðræðum við sjálft sig. Zolfaghari nefndi hvorki Trump né Bandaríkin á nafn í ávarpinu. Fleir hermenn á leið til Persaflóa Áframhaldandi árásir Íranshers á skotmörk í nágrannaríkjunum þykja ekki til marks um að draga fari úr átökum en ekkert lát er á þeim. Í nótt féllu sprengjur Íranshers í Kúveit og Barein og flugskeytum var beint gegn Ísrael. Í frétt AP segir að stigmögnun blasi við, frekar en friður í Mið-Austurlöndum. Þrátt fyrir yfirlýsingar Trumps um samningsvilja Írana, þá séu þúsundir bandarískra sjóliða á leið til Persaflóa.

Share this article