Security News

Cybersecurity news aggregator

🏛️
INFO News Mbl Innlent

Þorgerður segir ESB bera virðingu fyrir ferli Íslands

  • What: ESB's role in Iceland's political process
  • Impact: Discussion on energy policy and government relations
Read Full Article →

Innlent | mbl | 25.3.2026 | 11:30 Þorgerður segir ESB bera virðingu fyrir ferli Íslands Þorgerður Katrín segir að framkvæmdastjórn ESB þyki það „svolítið merkileg leið“ að virkja þjóðarviljann á þann hátt sem ríkisstjórnin hafi gert. mbl.is/Eggert Jóhannesson Setja bókamerki Tengdar fréttir Ísland og ESB Diljá ósátt og óskar eftir öðrum fundi Segir það dellu að aðildarviðræður séu hafnar Óvíst um afdrif umsóknar ESB-ummæli Þorgerðar í brennidepli á Alþingi Segir „af og frá“ að viðræður séu hafnar » Fleiri tengdar fréttir Alþingi Óvíst um afdrif umsóknar Hækkun orkuverðs ekki alslæm fyrir Íslendinga ESB-ummæli Þorgerðar í brennidepli á Alþingi Efast um að styrkir fyrir Evrópumál uppfylli skilyrði Beint: Þorgerður Katrín svarar utanríkismálanefnd » Fleiri tengdar fréttir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segir framkvæmdastjórn Evrópusambandsins bera mikla virðingu fyrir því ferli sem Ísland stendur nú í varðandi þjóðaratkvæðagreiðslu. Gerð hafi verið grein fyrir því að þjóðin sé að fara sérstaka leið með tveimur þjóðaratkvæðagreiðslum. Raunar þyki stjórninni það „svolítið merkileg leið“ að virkja þjóðarviljann á þann hátt. Þetta kom fram í svari ráðherrans við fyrirspurn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns Miðflokksins og nefndarmanns í utanríkismálanefnd Alþingis, á opnum fundi nefndarinnar í dag þar sem fjallað var um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Fast skotið á stjórnarandstöðuflokkana Sigmundur byrjaði á tillögu til formanns nefndarinnar, Pawel Bartoszek, um að gera ráð fyrir lengri tíma fyrir spurningar og svör í ljósi þess að ráðherrann hefði eytt miklum tíma í „skæting gagnvart stjórnarandstöðunni“. Vísaði hann þar til þess að í svari við fyrirspurn Diljár Mistar Einarsdóttur, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, hefði ráðherra skotið föstum skotum á stjórnarandstöðuflokka Alþingis. „Þetta eru líka sömu flokkarnir sem hafa komið í veg fyrir að við setjum auðlindaákvæði í stjórnarskrána. Mér finnst ekki fara saman hljóð og mynd hjá stjórnarandstöðuflokkunum sem eru að tala núna um forræði yfir auðlindum. Flokkar sem hafa ekki treyst sér til þess að tryggja auðlindaákvæði í stjórnarskrá,“ sagði ráðherrann í svari sínu. Frétt af mbl.is Segir það dellu að aðildarviðræður séu hafnar „Það eru allar þjóðir að endurmeta stöðu sína“ Sneri Sigmundur sér þá að eigin fyrirspurnum og spurði út í ummæli ráðherrans um að nú væri gluggi til að fá aðild að Evrópusambandinu. Vildi hann fá að vita á hvaða samtölum þetta mat ráðherra byggi. Þorgerður svaraði að það væri hennar pólitíska mat eftir samtöl sín um málið erlendis. „Ég er búin að vera að fara yfir hvernig heimsmálin eru. Það er eðlilegt og við sjáum að það eru allar þjóðir að endurmeta stöðu sína í þeim heimi sem er núna,“ sagði hún og tók dæmi um að Finnar og Svíar hefðu gengið í NATO á sínum tíma. Þá væru Danir gott dæmi um að þjóðir geti náð ýmsu fram í samningaviðræðum. Þeir hefðu verið undanþegnir varnar- og öryggiskafla ESB og efnt til þjóðaratkvæðagreiðslu til þess að aflétta þeirri undanþágu. „Samningaviðræður um hvað?“ Þá vildi Sigmundur fá að vita hvort ráðherrann hefði upplýst fulltrúa ESB um að hér á landi snerist þjóðaratkvæðagreiðslan ekki um hvort þjóðin vilji aðild að ESB heldur um að kanna hvað sé í boði. „Er búið að halda Evrópusambandinu upplýstu um þessa sérstæðu nálgun íslenskra stjórnvalda? Það verða samningaviðræður, segir ráðherrann. Samningaviðræður um hvað? Um varanlegar undanþágur frá regluverki Evrópusambandsins?“ Þorgerður sagði þá framkvæmdastjórn ESB bera mikla virðingu fyrir ferlinu. Þeim hafi verið gerð grein fyrir því að þjóðin væri að fara sérstaka leið með tveimur þjóðaratkvæðagreiðslum. „Þeim finnst það bara svolítið merkileg leið sem við erum að fara, að virkja þjóðarviljann með svona sterkum hætti, að fá skýrt umboð – eins og ég lagði reyndar til strax árið 2009 og þá voru ekki allir í þinginu sem tóku undir það, að virkja þjóðarviljann strax frá upphafi,“ sagði hún og hélt áfram: „Ég hef sagt nákvæmlega hvernig í þessu liggur og þau eru bara upplýst um það. Engar viðræður um eitthvað annað hafa átt sér stað.“ Aftur á móti hafi hún nýtt ferðirnar til að sinna hagsmunagæslu í tengslum við milliríkjasamninginn, sem er EES–samningurinn. Viðhalda verði þeirri hagsmunagæslu. Sigmundur Davíð á fundinum í morgun. mbl.is/Eggert Jóhannesson „Breytingar á stjórnarskránni til að heimila fullveldisframsal“ Að lokum spurði Sigmundur hvenær ráðherrann sæi fyrir sér að ríkisstjórnin legði til „breytingar á stjórnarskránni til að heimila fullveldisframsal, og þar af leiðandi inngöngu í Evrópusambandið“. Sagði Þorgerður þá að sér þætti tímasetningin góð hvað það varðar. Stjórnarskrá sé yfirleitt breytt undir lok kjörtímabils. Vilji þjóðin sjá samning þá verði Evrópusambandinu gert viðvart um að þjóðin vilji halda áfram þeim aðildarviðræðum sem hafa byrjað. Þá sé um leið hægt að fara í vinnu við stjórnarskrána, sem taki tíma. „Ég fagna því sérstaklega ef stjórnarandstöðuflokkarnir ætla að koma með okkur og setja inn auðlindaákvæði í stjórnarskrána,“ sagði utanríkisráðherra að lokum. Tengdar fréttir Ísland og ESB Diljá ósátt og óskar eftir öðrum fundi Segir það dellu að aðildarviðræður séu hafnar Óvíst um afdrif umsóknar ESB-ummæli Þorgerðar í brennidepli á Alþingi Segir „af og frá“ að viðræður séu hafnar » Fleiri tengdar fréttir Alþingi Óvíst um afdrif umsóknar Hækkun orkuverðs ekki alslæm fyrir Íslendinga ESB-ummæli Þorgerðar í brennidepli á Alþingi Efast um að styrkir fyrir Evrópumál uppfylli skilyrði Beint: Þorgerður Katrín svarar utanríkismálanefnd » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Loka Fjarðarheiði vegna erfiðra akstursskilyrða Alþjóðlegi vöffludagurinn er í dag Líf færist brátt í Hegningarhúsið Átján ára lést í miðjum leik „Lognið á undan storminum“: Illviðri í kortunum Umræðan Viðreisn og viðhaldið (í ESB) Tímabundin lækkun virðisaukaskatts á matvæli Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert ESB-ummæli Þorgerðar í brennidepli á Alþingi Fullkláruðum óseldum íbúðum fjölgað gríðarlega Loka Fjarðarheiði vegna erfiðra akstursskilyrða Leita til ríkislögreglustjóra vegna vagna Strætó Mest lesið Í gær Í vikunni Hamas-liðar á Höfðatorgi Appelsínugular viðvaranir: Stormur og stórhríð Vonar að Landhelgisgæslan sé klár með skip Múslimar annast sauðfjárslátrun í sláturhúsum Andlát: Ragnheiður Erla Bjarnadóttir Frysta þarf öll laun í landinu Varari um sig og óttast um öryggi sitt Óvíst um afdrif umsóknar „Erum að sjá jarðhitakerfið endurnýja sig“ Telja bandaríska ríkið skulda sér Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Vara við suðaustan hríðarbyl: Samgöngutruflanir líklegar Seinheppnir Bretar hrósa áhöfn Icelandair Andlát: Pétur Marteinn Páll Urbancic Getur hæglega endað með gosi Fluttur á sjúkrahús vegna ofkælingar Gul viðvörun fyrir land allt Miskunnarlaus meðferð í Mosfellssveit Fleiri Íslendingar óskað eftir aðstoð Hröð þrýstingsbreyting fyrsta merki um gos Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu „Ég er harmi slegin“ Hamas-liðar á Höfðatorgi Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Þrjú lúxushús á 33 milljónir Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Vara við blindbyl Nýjast á mbl.is » Loka Fjarðarheiði vegna erfiðra akstursskilyrða Alþjóðlegi vöffludagurinn er í dag Líf færist brátt í Hegningarhúsið Átján ára lést í miðjum leik „Lognið á undan storminum“: Illviðri í kortunum Umræðan Viðreisn og viðhaldið (í ESB) Tímabundin lækkun virðisaukaskatts á matvæli Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Vill opna úrræði fyrir mæður með fíknivanda Fullkláruðum óseldum íbúðum fjölgað gríðarlega „Lognið á undan storminum“: Illviðri í kortunum Miskunnarlaus meðferð í Mosfellssveit Mest lesið Í gær Í vikunni Hamas-liðar á Höfðatorgi Appelsínugular viðvaranir: Stormur og stórhríð Vonar að Landhelgisgæslan sé klár með skip Múslimar annast sauðfjárslátrun í sláturhúsum Andlát: Ragnheiður Erla Bjarnadóttir Frysta þarf öll laun í landinu Varari um sig og óttast um öryggi sitt Óvíst um afdrif umsóknar „Erum að sjá jarðhitakerfið endurnýja sig“ Telja bandaríska ríkið skulda sér Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Vara við suðaustan hríðarbyl: Samgöngutruflanir líklegar Seinheppnir Bretar hrósa áhöfn Icelandair Andlát: Pétur Marteinn Páll Urbancic Getur hæglega endað með gosi Fluttur á sjúkrahús vegna ofkælingar Gul viðvörun fyrir land allt Miskunnarlaus meðferð í Mosfellssveit Fleiri Íslendingar óskað eftir aðstoð Hröð þrýstingsbreyting fyrsta merki um gos Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu „Ég er harmi slegin“ Hamas-liðar á Höfðatorgi Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Þrjú lúxushús á 33 milljónir Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Vara við blindbyl

Share this article