„Þeir biðja ekki um hærri laun, þeir þurfa ekki vinnufatnað, þeir eru aldrei í símanum í vinnunni og taka sér ekki kaffi- eða matartíma svo eitthvað sé nefnt. Hér erum við að tala um þrjá róbóta hjá Íslenska gámafélaginu, sem slá aldrei slöku við þegar um flokkun á sorpi er að ræða. Róbótarnir að störfum frá morgni til kvölds Íslenska gámafélagið er með starfsaðstöðu sína á Esjumelum í Reykjavík þar sem vel yfir 300 manns vinna. Það er alltaf meira en nóg að gera að sækja rusl hingað og þangað og flokka það samviskusamlega. En það sem vekur hvað mesta athygli hjá fyrirtækinu eru þeir Róbert, Sæmundur og Sebastian en það eru nöfnin á róbótum fyrirtækisins, sem eru að störfum alla daga frá morgni til kvölds. „Þeir eru að flokka fyrir okkur grófan úrgang til að skapa verðmæti úr vörunni. Þetta eru róbotarnir okkar, sem eru núna búnir að vera að læra í fjóra mánuði hjá okkur og eru að verða svona nokkuð útskrifaðir, búnir að læra heilmikið á þessum fjórum til fimm mánuðum, sem eru liðnir,” segir Jón Þórir Frantzson, forstjóri Íslenska gámafélagsins og bætir við. „Það er svo gaman að fylgjast með þeim, fylgjast með þroska þessara „manna”, hann er mjög skjótur og þeir eru fljótir að læra.” Róbótarnir þurfa aldrei að fara í mat eða kaffi Jón segir að róbótarnir séu ekki kröfuharðir, þurfi aldrei að fara í mat og kaffi, á salerni og hvað þá að þeir séu að láta síma í vinnunni trufla sig eða að krefjast hærri launa. Og þið stýrið því bara hvenær þeir vinna og hvenær ekki? „Já, við fáum að ráða enn þá og þeir hafa gaman af því að fara af stað sýnist manni,” segir Jón. Og svo eruð þið líka með skemmtilega vél, kaffivél, hvaða vél er það? „Við erum að endurvinna fyrir Nespressó og Ölgerðina þar sem við erum að taka kaffihylkin og koma þeim aftur í sitt upprunalega horf, annars vegar kaffi og ál. Kaffið er hægt að nota í jarðgerðina og síðan er hægt að bræða álið upp og gera annað eða aftur ál úr því. Við erum nú þegar búnir að vinna fyrir þessi fyrirtæki fjögur hundruð tonn á nokkrum mánuðum,” segir Jón. En hvað segir Jón, hvernig eru landsmenn að standa sig í flokkun sorps? „Við erum alltaf að verða duglegri og duglegri, já, mér finnst auðvelt að kenna Íslendingum að flokka. Við þurfum oft að skilja út af hverju við erum að þessu en um leið og við skiljum það þá erum við tilbúin að gera það, já ég myndi segja að við séum dugleg að flokka,” segir forstjóri Íslenska gámafélagsins.