Stjórn Rauða krossins á Íslandi hefur ráðið Ingibjörgu Elínu Halldórsdóttur sem framkvæmdastjóra félagsins. Ingibjörg hóf störf fyrir Rauða krossinn árið 2015, fyrst sem verkefnastjóri deilda á Norðurlandi og síðan sem deildarstjóri Eyjafjarðardeildar. Ingibjörg gegndi þar til nýverið stöðu deildarstjóra Rauða krossins við Eyjafjörð en undanfarna mánuði hefur hún starfað sem sérfræðingur í forsætisráðuneytinu. „Ég er full tilhlökkunar að taka við starfi framkvæmdastjóra Rauða krossins á Íslandi enda á félagið, starfsfólk þess og sjálfboðaliðar, alveg sérstakan stað í hjarta mínu. Ég geri mér á sama tíma fulla grein fyrir þeim gríðarstóru áskorunum sem eru fram undan nú á tímum töluverðrar ókyrrðar og óvissu í heimsmálunum,“ segir Ingibjörg. Sjá einnig Rio Tinto styrkir Rauða krossinn um 208 milljónir Ingibjörg er 46 ára, fædd árið 1980. Hún útskrifaðist með B.A.-gráðu af félagsvísindasviði Háskólans á Akureyri (HA) árið 2014 og hefur sótt sér ýmsa viðbótarmenntun, m.a. í almennri stjórnun og áfallastjórnun. Á árunum 2011–2014 starfaði hún við HA þar sem hún sinnti m.a. erlendum verkefnum og samskiptum. Þá var hún fulltrúi Íslands í stjórn Norræna sumarháskólans á árunum 2012–2015. Af starfi deildarstjóra lét Ingibjörg um áramót er hún fluttist búferlum til Reykjavíkur ásamt eiginmanni sínum, Haraldi Loga Hringssyni, og hóf störf sem sérfræðingur og ritari ráðuneytisstjóra í forsætisráðuneytinu. „Við erum afar ánægð að fá Ingibjörgu Halldórsdóttur aftur til liðs við okkur, og nú sem framkvæmdastjóra. Við stöndum frammi fyrir krefjandi umhverfi og stórum verkefnum sem takast þarf á við af yfirvegun og með nýjum leiðum,“ segir Sigríður Stefánsdóttir formaður Rauða krossins.