Security News

Cybersecurity news aggregator

MEDIUM Attacks RÚV

Evrópusambandið hjólar í klámsíður og Snapchat fyrir brot á reglum um barnavernd

  • What: Investigation reveals adult content platforms failed to protect children from harmful content
  • Impact: EU regulators found violations of child protection rules under the Digital Services Act
Read Full Article →

Klámsíður á borð við Pornhub og Stripchat gera ekki nóg til þess að hindra að börn og unglingar geti skoðað efni sem þar er að finna. Þetta sýna frumniðurstöður rannsóknar sem framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur látið gera og kynntar voru í Brussel í dag. Rannsóknin leiðir í ljós að fyrirtækin hafi brotið þær reglur sem löggjöf um netfyrirtæki sem Evrópusambandið hefur sett ( DSA; Digital Services Act ), og varða ákvæði um vernd barna og unglinga gegn skaðlegu efni. Í tilkynningu framkvæmdastjórnarinnar kemur fram að fyrirtækin sem eiga þessar síður hafi haft meiri áhyggjur af áhrifum á orðspor, en af því hvort efnið á síðunum og aðgengi barna og unglinga hefði skaðleg áhrif á þau. Í rannsókn ESB er bent á að börn og unglingar komist inn á þessar síður, einfaldlega með því að smella á einn hnapp, þar sem beðið er um staðfestingu á að viðkomandi sé eldri en átján ára. Það dugi ekki til; því þurfi þessi fyrirtæki að taka upp strangari reglur og aðgerðir. Fyrirtækin hafa nú ráðrúm til að bregðast við þessum niðurstöðum, en verði niðurstaðan að þau hafi brotið reglurnar í DSA-löggjöf Evrópusambandsins, getur farið svo að þau verði sektuð. Snapchat einnig undir ámæli Framkvæmdastjórnin kynnti einnig í dag að rannsókn væri hafin á Snapchat samfélagsmiðlinum, sömuleiðis fyrir að fara ekki eftir reglum um vernd barna og unglinga. Í tilkynningu um þetta kemur fram að rannsóknin á Snapchat beinist að því hvort ungir notendur séu í hættu gagnvart fólki sem reyni að tæla börn og unglinga til kynferðislegra athafna og hvort á miðlinum séu að finna upplýsingar um ólögleg efni eins og eiturlyf. Rétt eins og með rannsóknina á klámsíðum, beinist athugun framkvæmdastjórnarinnar á Snapchat einnig að því hvort skilyrði um sönnun á aldri notenda séu nægilega virk. Reglur Evrópusambandsins um netfyrirtæki eiga við á Evrópska efnahagssvæðinu, og undanfarin misseri hefur verið unnið að því að innleiða þær á Íslandi, í Noregi og í Lichtenstein.

Share this article