- What: Icelandic artists perform on music show
- Impact: Highlights local music scene and cultural events
Þormóður, Maron Birnir og Alaska 1867 – Stoppa tímann Þann 20. mars gaf Þormóður út breiðskífuna Meira þar sem er býsna gestkvæmt. Meðal gesta eru Friðrik Dór Birnir, Emmsjé Gauti og Króli. Í laginu sem fer best af stað á streymisveitum eru það Maron Birnir og Alaska 1867 sem kíkja í stúdíó til Þormóðs og taka Stoppa tímann. Undiraldan fimmtudaginn 26. mars Að venju er af nægu að taka í nýrri íslenskri tónlist þessa vikuna og meðal þeirra sem bjóða upp í dans eru Þormóður, Maron Birnir og Alaska 1867, Birnir, Flott og Hreimur. Patrik Snær Atlason – Þú ert ekki hér Þú ert ekki hér er fyrsta lagið á nýrri plötu Patriks Snæs Atlasonar og setur tóninn fyrir söguna sem platan segir. Lagið fjallar um söknuð, missi og tómarúmið sem situr eftir þegar manneskja sem skiptir mann miklu máli er ekki lengur til staðar en árið 2010 varð Patrik fyrir miklu áfalli þegar móðurbróðir hans, Hannes Helgason, var myrtur. Svansa ásamt Ouse – What you made me Lag Svönsu, What you made me, fjallar um baráttu hennar við króníska sjúkdóma, en ekki síst andlegu áhrifin, þunglyndi og kvíða sem fylgja. Lagið vinnur Svansa sem er búsett í Danmörku með bróður sínum Ouse og ferlið er þannig að hún semur lög og texta, spilar á gítar og syngur en hann bætir inn rest. Hreimur – Svona var lífið Svona er lífið frá Hreimi er samið um mann sem er rúmlega áttræður, búinn að missa konuna sína fyrir einhverjum árum, lífið farið að róast svo um munar. Eitthvað gerist einn daginn þegar hann vaknar, 50 árum yngri, og allt er eins og það var þá. Hann veit að hann fær líklega bara einn svona dag og ætlar sannarlega að reyna að njóta hans. Frýs – Roll over Hljómsveitin Frýs hefur gefið út nýtt lag – Roll Over. Þetta er fyrsta útgefna lagið með sveitinni síðan ný söngkona gekk til liðs við bandið en mannabreytingar urðu á bandinu í fyrra þegar skipt var um söngvara. Fyrrum söngvari bandsins hætti í sveitinn og við keflinu tók Sólveig Torfadóttir. Mollý Jökulsdóttir – The worst idea The worst idea er nýjasta smáskífa Mollýar sem hún skilgreinir sem danspopp með snjöllum texta og öfugum staðalýmindum. Lagið er samvinna með tónlistarmanninum Navah og kemur út 10. apríl 2026 á vegum Chapter Eight Records. Það er sungið á ensku og hún vill meina að það geisli sterkri orku og sé með viðlagi sem hægt er að syngja með eftir fyrstu hlustun. Þorgeir Brimir Harðarson – My Hero Þorgeir Brimir hefur sent frá sér My Hero sem er hans eigið lag og texti. Lagið syngur hann sjálfur en Vignir Snær stjórnar upptöku auk þess að spila á bassa og gítar, Þórir Úlfarsson er á píanó og hammond, Benedikt Brynleifsson er á trommur. Undiraldan þriðjudaginn 24. mars Að venju er af nægu að taka í nýrri íslenskri tónlist þessa vikuna og meðal þeirra sem bjóða upp í dans eru Þormóður, Maron Birnir og Alaska 1867, Birnir, Flott og Hreimur. Birnir – Alveg farinn Tónlistarmaðurinn Birnir segir að hann sé alveg farinn í nýju lagi sínu sem kom út síðastliðinn föstudag. Lagið er samið af Birni og Marteini Bngrboy sem framleiddi líka lagið en textinn er frá Birni. Flott – Tuttugu og eitthvað Lagið er er titillag grínþáttanna Tuttugu og eitthvað sem verða frumsýndir á RÚV 17. apríl og eru eftir Vigdísi Hafliðadóttur, Óla Gunnar Gunnarsson og Arnór Björnsson. Lagið er eftir Ragnhildi Veigarsdóttur og Vigdísi Hafliðadóttur en tónlistin í þáttunum er eftir Ragnhildi og lögin eru eftir FLOTT og flutt af hljómsveitinni. Ívar Ben – Týndu orðin Lagið Týndu orðin er frumsamið melódískt popp-rokk frá Ívari Ben með eilítilli 70's slikju. Textinn fjallar um það að finna ekki orðin sem mann langar að segja eða skrifa, og finnast þau kannski ekki skilja mikið eftir sig, þegar þau loks tínast til manns. Gyða Valtýsdóttir – Mirror Lagið Mirror er tekið af plötu hennar Mother Pearl sem kom út á föstudaginn. Lagið er seiðandi hugleiðing Gyðu um tengsl og undirmeðvitund. Hún segir um lagið: „Við erum ljósbrot í aðskildum líkömum. Lífið færir okkur sífelldar vísbendingar um hvernig við getum endurtengst því æðra og yfirskilvitlega. Ef við leyfum okkur að horfast í augu við okkur sjálf í spegilmynd annarra finnum við lykilinn að ástinni og leiðina að uppsprettunni.“ Mt. Fujitive – Tamashii Magnús Valur Willemsson sem kallar sig Mt. Fujitive er kannski ekki á allra vörum en tónlist hans er vinsæl á streymisveitum svo vinsæl að streymi sumra laga hans telja tugi milljóna. Tónlistinn er lo-fi hiphop og nýjasta plata hans heitir Tensei og inniheldur lagið Tamashii. Eyþór Arnalds – Opening Tónlistarmaðurinn Eyþór Arnalds hefur sent frá sér eigið lag sem heitir Opening en myndbandið við það er eftir Karim Iliya og þar má sjá Eyþór arka um óbyggðir íslands og spila fyrir hesta og vatn. Bóndi og Kerling – Stutta Stína Bóndi og Kerling búa í Eyjafjarðarsveit og hafa sent frá sér reggí lagið Stutta Stína og plötu númer 2 sem er frekar þjóðleg. Dúettinn skipa þau Sigríður Hulda Arnardóttir og Brynjólfur Brynjólfsson. Þau hafa verið að vasast í tónlist í fáeina áratugi og eru nýlega farin að gefa út eigin tónlist í sameiningu það er Sígríður syngur og Brynjólfur sér um undirleik. Undiraldan lagalisti