Innlent | mbl | 26.3.2026 | 18:41 Alvarlegt netsvindl fyrir vestan Hótel Breiðavík sem Birna Mjöll og maður hennar reka. Hún segir farir sínar ekki sléttar eftir að hafa lent í óprúttnum svikahröppum á netinu en hefur mestar áhyggjur af ferðalöngum sem nú séu væntanlega á leiðinni í sumar og eigi enga gistingu sem þeir þó telji sig hafa greitt fyrir. Ljósmynd/Breidavik.is Atli Steinn Guðmundsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Netsvik Grunsamlegir tölvupóstar á ferð Svikahrappar náðu milljarði „Einstaklega ánægjulegt í undarlegum aðstæðum“ Fylgdust með netsvikum í rauntíma Nafn Sigríðar Bjarkar notað í svikapósti » Fleiri tengdar fréttir „Ég fór að taka eftir því í haust að þá fór að koma póstur frá fólki sem sagðist vera búið að borga inn á PayPal. Þessum póstum fjölgaði svo, fólk sagði mér að það væri búið að borga og sendi mér kvittanir og þær voru alveg eins og kvittanirnar úr kerfinu hjá mér.“ Þetta segir Birna Mjöll Atladóttir, staðarhaldari og eigandi Hótels Breiðavíkur við Látrabjarg, í samtali við mbl.is en hún varð illilega fyrir barðinu á netsvikahröppum – þó kannski gestir hennar frekar en hún. Birna Mjöll greinir frá málinu í pistli Facebook-hópnum Baklandi ferðaþjónustunnar sem hún hefur með svofelldum orðum: Ég lenti í þeirri óskemmtilegu reynslu að brotist var inn í tölvuna mína af óprúttnum erlendum aðilum og ekki nóg með það heldur bjuggu þeir til tvær vefsíður sem voru algjörlega eins og mín síða nema þeirra endaði .com en mín á .is Inn í tölvunni náðu þeir í pósta sem ég var búin að svara að það væri fullbókað hjá mér. Þessum pósti svöruðu þeir með því að segja að það hafi losnað en það þurfi að borga fyrirfram inn á PayPal. Lýstu herbergjum sem ekki eru til Kveðst hún fljótlega hafa áttað sig á því að allar bókanirnar sem hinir óprúttnu aðilar sendu svarpósta um voru kringum 12. ágúst þegar almyrkvi verður á sólu og mun fyrirbærið blasa við meðal annars frá vesturhluta Íslands, þar á meðal Vestfjörðum. Birna Mjöll heldur áfram frásögn sinni við mbl.is. „Ég fór þá að rýna í þessa pósta frá þessum aðilum sem voru búnir að hafa samband við mig og sá þá að þeir höfðu verið að svara fólki með því að rými hefði losnað og voru að spyrja fólk hvernig herbergi það vildi og lýsa þar herbergjum sem ég er ekki einu sinni með,“ segir hún frá. Hinir grunlausu bókunaraðilar hafi svo greitt fyrir gistinguna – og það fé rann vitaskuld til svikahrappanna, ekki til hótelsins – og um leið og greitt hafði verið segir Birna Mjöll hina óprúttnu aðila hafa hætt að svara fólkinu. Birna Mjöll hefur þungar áhyggjur af þeim sem eigi eftir að koma í sumar á fullt hótel og telja sig eiga gistingu. Ljósmynd/Aðsend Nákvæm eftirmynd heimasíðunnar „Þá fer fólkið að leita að öðrum netföngum á hótelinu og finnur netfangið mitt, fer að senda mér póst og spyrja af hverju því sé ekki svarað og svo framvegis. Ég útskýrði þá hvernig komið væri og benti á að þeirra bókanir væru gerðar gegnum einhverja síðu með endingunni .com. Þetta voru tvær síður sem þeir stofnuðu, hotelbreidavik.com og breidavik.com. Þeirri seinni var nú lokað fljótlega en svo lét lögreglan loka hotelbreidavik.com,“ segir Birna Mjöll frá. Segir hún fölsuðu síðurnar hafa verið nákvæma eftirmynd hennar síðu nema hvað að á annarri þeirra hafi verið blog-möguleiki. „Þar voru gervigreindarmyndir af fólki inni á hótelinu og út um glugga mátti sjá umhverfið hér úti og ofan á þetta voru þeir að skrifa þarna að þeir væru með skipulagðar norðurljósaferðir, ferðir á bjargið og ferðir í tengslum við sólmyrkvann. Svo veit maður ekkert en tölvustrákurinn minn heldur að það hafi ekkert margir svona póstar farið út. Ég fór svo til lögreglunnar hérna sem sendi erindi til lögreglunnar fyrir sunnan og nokkrum dögum seinna komu hér lögreglumenn sem fóru fram á að fá tölvuna sem þeir og fengu, ég fékk bara leyfi til að fara suður og kaupa mér nýja og afrita gögnin úr hinni,“ segir Birna Mjöll frá sem þar með mátti leggja á sig ferð í höfuðstaðinn og auk þess punga út fyrir nýrri tölvu. Það var þó ekki það versta... „Svo er það þessi ótti. Nú eru margir dagar hér í sumar fullbókaðir, sérstaklega kringum sólmyrkvann og þessir menn voru að selja bókanir á tjaldstæðið líka sem við gerum ekki. Nú er ég hrædd um hvað muni gerast þegar fólk kemur hérna og er með kvittanir upp á að það sé búið að borga og svo er ekki pláss,“ segir Birna Mjöll frá og eru áhyggjur hennar ekki nema skiljanlegar. „Ég finn til með því fólki sem á eftir að koma, og hvað...?“ spyr hún enda veit hún ekkert um hve stór þessi hópur er og hefur engin tök á að hafa samband við fólkið þar sem svindlbókanirnar skiluðu sér aldrei í hennar bókunarkerfi. Eina fólkið sem hún hefur getað leitt í allan sanninn um það sem gerðist er það fólk sem hafði samband við hana eftir að svindlararnir hættu að svara því í kjölfar greiðslu. Óskiljanlegar starfsumsóknir „Hér er alls staðar fullbókað. Ég læt vera með mig, en hvað með þetta fólk sem kannski á eftir að koma hérna?“ spyr Birna Mjöll og segir frá öðrum anga svindlsins, raunar óskiljanlegum. „Ég hef aldrei auglýst eftir starfsfólki en fólk hefur alltaf sótt um hjá mér, erlendir aðilar sem sækja bara um gegnum heimasíðuna. Ég hef svo farið gegnum þá pósta og ráðið eftir því. En núna fór að rigna inn starfsumsóknum, 20, 30, 40 póstum á dag, myndir af fólki og ferilskrár og allt saman. Svo sá ég fréttaumfjöllun sem leiddi mig í sanninn um að þetta væru bara gervigreindarumsóknir, ekkert raunverulegt fólk á bak við þetta, og ég spyr mig, eftir hverju er fólk að slægjast með þessu, hvar er gróðinn þarna?“ spyr hún. Enn eitt svindlið séu svo skilaboð sem virðist koma gegnum bókunarsíðuna Booking.com. Þessi skilaboð segir Birna Mjöll koma frá „fólki“ sem sé að kvarta og vilji fá endurgreitt. „Herbergin hafi verið skítug, starfsfólkið leiðinlegt og eitthvað svona. En þetta er fólk sem á til dæmis að hafa verið hérna í janúar. Þá er ekki opið hjá okkur. Og þetta eru endalausir póstar sem virðast koma frá Booking en þegar ég fer inn á þá síðu þá er þar ekki neitt,“ segir Birna Mjöll. Fólk frá Kína í góðri trú Verst þykir henni, sem fyrr segir, að eiga von á fólki sem telji sig ranglega eiga pantaða hjá henni gistingu en grípi svo í tómt. „Þú getur rétt ímyndað þér, kannski fólk sem kemur frá Kína sem telur sig búið að borga allt og ganga frá öllu og svo er allt fullt hér. Við hjónin erum með breitt bak en það er þetta fólk sem ég hef miklar áhyggjur af,“ segir Birna Mjöll Atladóttir á Hótel Breiðavík og vitnar að lokum í gamlan bónda þar í sveitinni um svindfaraldur nútímans: „Við förum bara á endanum að sofa með peningana undir koddanum,“ sagði sá. Kannski óvitlaust miðað við allt og allt. Tengdar fréttir Netsvik Grunsamlegir tölvupóstar á ferð Svikahrappar náðu milljarði „Einstaklega ánægjulegt í undarlegum aðstæðum“ Fylgdust með netsvikum í rauntíma Nafn Sigríðar Bjarkar notað í svikapósti » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Kápan kostaði tæpa hálfa milljón Kanadískur markvörður á Selfoss Alvarlegt netsvindl fyrir vestan Íranar hleypa skipum í gegn að „gjöf“ Stóðu í ströngu víða um land Umræðan Seinkum upphafi skóladags Biskupinn og biskupsstólinn í Skálholt Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Þetta er orðið algjörlega sturlað“ Reykjanesbrautin er lokuð Daði Már fékk áfall yfir morgunkaffinu Vel mannað að beiðni almannavarnarnefndar Mest lesið Í gær Í vikunni Fylgstu með lægðinni ganga yfir Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn Daði Már fékk uppsagnarbréf Spár að ganga eftir: Fólk haldi sig heima Stangast á við heimildarmenn Daði Már fékk áfall yfir morgunkaffinu „Þetta eru einfaldlega vonbrigði“ „Augljóst að fólk hafi farið að tilmælum lögreglunnar“ Snúa fólki við á Reykjanesbrautinni Á hjóli í appelsínugulri viðvörun Hamas-liðar á Höfðatorgi Appelsínugular viðvaranir: Stormur og stórhríð Múslimar annast sauðfjárslátrun í sláturhúsum Vonar að Landhelgisgæslan sé klár með skip Fylgstu með lægðinni ganga yfir Frysta þarf öll laun í landinu Andlát: Ragnheiður Erla Bjarnadóttir Leysa páskaeggjavanda spítalans Varari um sig og óttast um öryggi sitt Ekkert barn á nýju heimili: Tókst að strjúka Fylgstu með lægðinni ganga yfir Hamas-liðar á Höfðatorgi „Ég er harmi slegin“ Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Þrjú lúxushús á 33 milljónir Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn Nýjast á mbl.is » Kápan kostaði tæpa hálfa milljón Kanadískur markvörður á Selfoss Alvarlegt netsvindl fyrir vestan Íranar hleypa skipum í gegn að „gjöf“ Stóðu í ströngu víða um land Umræðan Seinkum upphafi skóladags Biskupinn og biskupsstólinn í Skálholt Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Björgunarsveitarmenn keyrðu á milli strætóskýla Katla minnir á sig Alvarlegt netsvindl fyrir vestan Verðbólgan eykst og mælist nú 5,4% Mest lesið Í gær Í vikunni Fylgstu með lægðinni ganga yfir Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn Daði Már fékk uppsagnarbréf Spár að ganga eftir: Fólk haldi sig heima Stangast á við heimildarmenn Daði Már fékk áfall yfir morgunkaffinu „Þetta eru einfaldlega vonbrigði“ „Augljóst að fólk hafi farið að tilmælum lögreglunnar“ Snúa fólki við á Reykjanesbrautinni Á hjóli í appelsínugulri viðvörun Hamas-liðar á Höfðatorgi Appelsínugular viðvaranir: Stormur og stórhríð Múslimar annast sauðfjárslátrun í sláturhúsum Vonar að Landhelgisgæslan sé klár með skip Fylgstu með lægðinni ganga yfir Frysta þarf öll laun í landinu Andlát: Ragnheiður Erla Bjarnadóttir Leysa páskaeggjavanda spítalans Varari um sig og óttast um öryggi sitt Ekkert barn á nýju heimili: Tókst að strjúka Fylgstu með lægðinni ganga yfir Hamas-liðar á Höfðatorgi „Ég er harmi slegin“ Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Þrjú lúxushús á 33 milljónir Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Rukka fyrir
This article describes a targeted social engineering and business email compromise (BEC) attack where threat actors breached a hotel's computer system, stole legitimate email threads, and created fraudulent .com mirror websites of the legitimate .is site to intercept and redirect customer payments. The attackers used the stolen communication to impersonate the hotel, confirm fake bookings for non-existent rooms, and direct victims to pay via PayPal to the attackers' accounts. No technical vulnerability, CVSS score, or software version information is provided in the source article.