Stórhríðin sem gekk yfir landið í dag gekk að mestu áfallalaust fyrir sig, enda fóru flestir að tilmælum almannavarna um að vera ekki á ferðinni að óþörfu. Appelsínugular viðvaranir voru í nokkrum landshlutum í morgun og fram yfir hádegi, en síðustu gulu viðvaranirnar falla úr gildi klukkan átta. Kristján Helgi Þráinsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir það hafa bjargað deginum að fólk hafi fylgt tilmælum. „Það er lykillinn að því að dagurinn gekk vel.“ Stórhríðin sem gekk yfir landið í dag gekk að mestu áfallalaust fyrir sig, enda fóru flestir að tilmælum almannavarna um að vera ekki á ferðinni að óþörfu. Versta veðrið var á suðvestanverðu landinu í upphafi dags. 250 björgunarsveitarmenn sinntu útköllum á og í nágrenni höfuðborgarsvæðisins. Öllum stofnvegum til höfuðborgarsvæðisins var lokað klukkan 4 í nótt nema Reykjanesbraut, en henni var lokað um klukkan 9. Þar hafði orðið fimm bíla árekstur og nokkrir bílar lent utan vegar. Ökumaður sem ekki virti lokunarpóst við Reykjanesbraut ók á útrétta hönd björgunarsveitarmanns. Vegalokanir voru víða um landið en Hellisheiði, Holtavörðuheiði og Öxnadalsheiði hafa verið opnaðar á ný. Enn er lokað um Mývatns- og Möðrudalsöræfi og verður ekki opnað í dag. Þá er hringvegurinn lokaður frá Kvískerjum í Öræfum alla leið að Djúpavogi. Hægt er að sjá fréttir frá deginum í óveðursfréttavaktinni við héldum út í dag, hér að neðan.