- What: Attack on Höfðatorgi 13 with suspect in custody
- Impact: Ongoing investigation into alleged assault
Innlent | Morgunblaðið | 27.3.2026 | 6:00 „Þú ert alveg á réttri leið“ Árásin var hrottafengin. mbl.is/Eggert Setja bókamerki Tengdar fréttir Árás á Höfðatorgi 13 með réttarstöðu sakbornings í Höfðatorgsmáli Stangast á við heimildarmenn Vill láta kanna bakgrunn Lögreglan greini grímulaust frá atburðum Áfram í haldi eftir árásina á Höfðatorgi » Fleiri tengdar fréttir Allar upplýsingar og ábendingar, sem frétt Morgunblaðsins um alvarlega líkamsárás í bílakjallara á Höfðatorgi byggðist á, voru bornar undir yfirmann hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu áður en fréttin var birt. Hann vildi hvorki neita né staðfesta nokkuð um gang og gögn rannsóknarinnar, en sagði blaðamanni að hann væri á réttri leið. Yfirmaðurinn vék sér hjá því í samtali við blaðamann að segja nokkuð um gang rannsóknarinnar, annað en að taka fram að enn væri unnið að yfirferð gagna, þar á meðal rafrænna gagna úr farsímum sakborninga, sem heimildir blaðsins hermdu að innihéldu vísbendingar um tengsl þeirra við hryðjuverkahreyfinguna Hamas. Í samtalinu greindi yfirmaðurinn jafnframt frá fjölda sakborninga og uppruna þeirra. Hann staðfesti að þeir væru frá Palestínu, þótt ríkisföngin væru fleiri. Þegar hann var sérstaklega inntur eftir því hvort rétt væri, eins og heimildarmenn blaðsins innan lögreglunnar bæru, að í rafrænum gögnum væri að finna myndir, sem bentu til tengsla sakborninga við hryðjuverkasamtök, samsinnti hann því óbeint: „Þú ert alveg á réttri leið.“ Þessar upplýsingar höfðu blaðamenn Morgunblaðsins fengið frá tveimur trúverðugum heimildarmönnum innan lögreglunnar. Eftir birtingu fréttarinnar hafa fleiri lögreglumenn borið um hið sama, en enginn vill gera það undir nafni, enda er vísað til rannsóknargagna í virkri rannsókn. Upplýsingafulltrúi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og yfirmaður rannsóknarinnar hafa síðar hafnað því að nokkuð bendi til tengsla sakborninga við Hamas eða önnur hryðjuverkasamtök. Þó taka þeir fram að það eigi við „á þessu stigi málsins“ og viðurkennt er að enn sé mikið stafrænt efni óyfirfarið. Lögreglan hefur ítrekað, í samskiptum við aðra fjölmiðla, vísað því á bug að frétt Morgunblaðsins um tengsl við hryðjuverkasamtök eigi við nokkur rök að styðjast. Athygli vekur að lögregla telur nú óhætt að greina frá því að sakborningar séu frá Palestínu, en það þótti áður viðkvæmt. Í samtali við blaðamann lýsti fyrrnefndur yfirmaður einnig áhyggjum af öryggi almennra borgara, ekki síður en lögreglumanna, í tengslum við árásina. Morgunblaðið hefur farið vandlega yfir gögn blaðamanna sinna, sem og samtöl við viðmælendur og heimildarmenn. Þar kemur skýrt fram að yfirmaður lögreglunnar taldi eftirgrennslan blaðsins um meginefni fréttarinnar á rökum reista, þótt svo virðist sem ákvörðun um annað hafi verið tekin í yfirstjórn lögreglu eftir birtingu hennar. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Árás á Höfðatorgi 13 með réttarstöðu sakbornings í Höfðatorgsmáli Stangast á við heimildarmenn Vill láta kanna bakgrunn Lögreglan greini grímulaust frá atburðum Áfram í haldi eftir árásina á Höfðatorgi » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » „Þú ert alveg á réttri leið“ Ótrúleg breyting fyrir og eftir fegrunaraðgerð „Þetta er besta starf sem ég hef haft“ Stórfelld árleg hækkun gjalda Gular viðvaranir vegna norðan hríðar Umræðan Hallarekstur stöðvaður Fullveldi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Alvarlegt netsvindl fyrir vestan „Þetta er orðið algjörlega sturlað“ Daði Már fékk áfall yfir morgunkaffinu Alfa Framtak kaupir Nóa Síríus Mest lesið Í gær Í vikunni Ekki verður af samstarfinu við Klíníkina Jók hraðann og ók utan í björgunarsveitarmann Dæmdur til að greiða 142 milljónir í sekt Minnihluti félaga í FA vill halda áfram viðræðum Alvarlegt netsvindl fyrir vestan Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn Bubbi spáir hruni Spotify Vinsælustu nöfnin á síðasta ári Skúli og aðrir stjórnarmenn sýknaðir Daði Már fékk áfall yfir morgunkaffinu Fylgstu með lægðinni ganga yfir Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn Daði Már fékk uppsagnarbréf Spár að ganga eftir: Fólk haldi sig heima Stangast á við heimildarmenn Daði Már fékk áfall yfir morgunkaffinu Fastur í snjó á ónýtum sumardekkjum „Þetta eru einfaldlega vonbrigði“ „Augljóst að fólk hafi farið að tilmælum lögreglunnar“ Snúa fólki við á Reykjanesbrautinni Fylgstu með lægðinni ganga yfir Hamas-liðar á Höfðatorgi Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn „Ég er harmi slegin“ Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Þrjú lúxushús á 33 milljónir Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Nýjast á mbl.is » „Þú ert alveg á réttri leið“ Ótrúleg breyting fyrir og eftir fegrunaraðgerð „Þetta er besta starf sem ég hef haft“ Stórfelld árleg hækkun gjalda Gular viðvaranir vegna norðan hríðar Umræðan Hallarekstur stöðvaður Fullveldi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Geta ekki sagt „full og varanleg“ „Þetta er orðið algjörlega sturlað“ 13 með réttarstöðu sakbornings í Höfðatorgsmáli Snúa fólki við á Reykjanesbrautinni Mest lesið Í gær Í vikunni Ekki verður af samstarfinu við Klíníkina Jók hraðann og ók utan í björgunarsveitarmann Dæmdur til að greiða 142 milljónir í sekt Minnihluti félaga í FA vill halda áfram viðræðum Alvarlegt netsvindl fyrir vestan Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn Bubbi spáir hruni Spotify Vinsælustu nöfnin á síðasta ári Skúli og aðrir stjórnarmenn sýknaðir Daði Már fékk áfall yfir morgunkaffinu Fylgstu með lægðinni ganga yfir Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn Daði Már fékk uppsagnarbréf Spár að ganga eftir: Fólk haldi sig heima Stangast á við heimildarmenn Daði Már fékk áfall yfir morgunkaffinu Fastur í snjó á ónýtum sumardekkjum „Þetta eru einfaldlega vonbrigði“ „Augljóst að fólk hafi farið að tilmælum lögreglunnar“ Snúa fólki við á Reykjanesbrautinni Fylgstu með lægðinni ganga yfir Hamas-liðar á Höfðatorgi Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn „Ég er harmi slegin“ Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Þrjú lúxushús á 33 milljónir Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“