Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Ragnar Þór hóar í gamla bandið

Read Full Article →

Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðisráðherra, virðist nú vera í óða önn að hóa í gamla bandið úr fjármála­kreppunni til að spila undir við þjóðfélagsbreytingaverkefni ráðherrans. Þannig fékk hann Marinó G. Njálsson, bloggara og fyrrum stjórnarmann Hagsmunasamtaka heimilanna, til að leiða starfshóp sem á hvorki meira né minna en að smíða nýtt húsnæðislánakerfi á Íslandi. Hrafnarnir bíða nú spenntir eftir því hvaða hlutverk Ragnar Þór muni finna valinkunnum hrunsölumönnum á borð við Þór Saari til að móta nýja þjóð­félagsskipan í anda hugmyndafræði Flokks fólksins. Annars er skammt stórra högga á milli í stjórn­málunum. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra lýsti því yfir að sögn Morgunblaðsins á fundi með fólki úr viðskiptalífinu að Íslendingar myndu fara með stjórn fiskveiða í framkvæmdastjórn ESB ef til aðildar kæmi. Þetta eru mikil tíðindi og velta margir fyrir sér hvaða Íslendingur myndi verða „fiskveiðikommissar“ ESB. Hrafnarnir telja ­svarið blasa við: ­Sigurjón Þórðarson eða Lilja Rafney Magnúsdóttir. Huginn og Muninn er einn af föstum ritstjórnardálkum Viðskiptablaðsins. Þessi grein birtist fyrst í blaðinu sem kom út 25. mars 2026.

Share this article