- What: Eyjólfur Axelsson joins Arma Advisory
- Impact: He brings 20 years of financial experience
Eyjólfur Axelsson hefur verið ráðinn í ráðgjafarteymi Arma Advisory en hann hefur starfað á fjármálamarkaði tæp 20 ár, lengst af í fyrirtækjaráðgjöf. Þetta kemur fram á Linkedin-síðu félagsins þar sem félagið segir að þekking hans og reynsla muni styrkja Arma. Eyjólfur starfaði áður sem fjármálastjóri Arctic Green Energy í Evrópu frá árinu 2023. Þar áður starfaði hann hjá fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka í tíu ár. „Við hlökkum til samstarfsins með Eyjólfi og vonum að þið takið vel á móti honum í verkefnum sem og á förnum vegi,“ segir í tilkynningu.