Frá og með deginum í dag er ekki hægt að leggja bílum í almenn stæði við Keflavíkurflugvöll nema búið sé að bóka fyrir fram. Fyrirkomulagið verður þannig fram yfir páska. Í tilkynningu frá Isavia kemur fram að ekki verði hægt að aka inn á bílastæðið nema búið sé að bóka fyrir fram. Almenn stæði eru einnig kölluð P3 og þar er hægt að leggja bílum til lengri tíma. Búist er við mikilli umferð um flugvöllinn í næstu viku. „Fyrirsjáanlegt er að bílastæði flugvallarins verði fullnýtt fyrir og yfir hátíðirnar. Gestir Keflavíkurflugvallar eru hvattir til þess að mæta snemma í flug og þau sem koma á bíl að bóka stæði fyrir fram,“ segir í tilkynningunni.