Utanríkisráðherra Írans, Abbas Araghchi, segir að árás Bandaríkjahers á skóla í Minab-héraði landsins fyrir tæpum mánuði hafi verið stríðsglæpur. Minnst 165 voru drepnir í árásinni, að mestu leyti skólabörn. Fjöldi látinna hefur þó verið lítillega á reiki. Myndskeið sem náðust af árásinni sýna Tomahawk-flugskeyti, sem Bandaríkjaher er einn um að nota, steypast til jarðar á miklum hraða. Mikil sprenging verður í kjölfarið. Fundur mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna í dag var með öllu lagður undir umræður um árásina. Íran, Kúba og Kína fóru fram á að árásin yrði rædd á sérstökum fundi. „Meira en 175 nemendum og kennurum var slátrað í köldu blóði,“ segir Araghchi, í árás sem hann segir að hafi verið útreiknuð. Volker Turk, mannréttindastjóri Sameinuðu þjóðanna, segir að hann fyllist skelfingu við lýsingar af árásinni. Móðir tveggja barna sem drepin voru í árásinni ávarpaði fundinn í gegnum fjarfundarbúnað. „Látið þennan harmleik ekki gleymast,“ sagði hún. „Engin móðir getur búið sig undir að heyra orðin: Barnið þitt kemur ekki aftur.“ Í bráðabirgðaniðurstöðum rannsóknar bandarískra hermálayfirvalda, sem New York Times greinir frá, segir að árás hafi verið gerð á rangt skotmark fyrir mistök. Árás hafi verið gerð á nærliggjandi herstöð, sem skólinn var eitt sinn hluti af, og stuðst hafi verið við úrelt gögn. Bandaríkjastjórn hefur lengi forðast að ræða árásina á skólann í Minab og sagt að sé þörf á að rannsaka eitthvað framferði Bandaríkjahers verði það gert af fullum þunga. Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur jafnvel sakað Írana um að hafa sjálfir staðið að baki árásinni, eitthvað sem þótti afsannað þegar myndskeið birtust og þóttu sýna glögglega að þar færi Tomahawk-flugskeyti.