Íslands- og unglingameistaramótið í 50 metra laug í sundi hófst í Ásvallalaug í Hafnarfirði í gær og var Íslandsmet slegið í fyrsta úrslitahluta mótsins. Boðsundssveit Sundfélags Hafnarfjarðar bætti fyrra Íslandsmet í 4x200 metra skriðsundi um 3.13 sekúndur. Sveitina skipa Birnir Freyr Hálfdánarsson, Hólmar Grétarsson, Magnús Víðir Jónsson og Ýmir Chatenay Sölvasson. Þeir kláruðu sundið á 7 mínútum og 37.92 sekúndum og bættu fyrra met sem sveit SH setti á ÍM50 í fyrra um 3.13 sekúndur. Fimm náðu lágmörkum fyrir EM Fimm sundmenn náðu lágmörkum á Evrópumeistaramótið í 50 metra laug, sem fer fram í París 10. - 16. ágúst í sumar. Sundfólkið er Birnir Freyr Hálfdánarsson (SH) í 100 flugsundi, Guðmundur Leó Rafnsson (ÍRB) í 200 baksundi, Snorri Dagur Einarsson (SH) í 100 bringusundi, Jóhanna Elín Guðmundsdóttir (SH) í 50 skriðsundi og Símon Elías Statkevicius (SH) í 50 skriðsundi. Einnig náðu Sólveig Freyja Hákonardóttir (SH) og Vala Dís Cicero (SH) lágmörkum inn á Evrópumeistaramót unglinga sem fer fram í München í Þýskalandi 7.-12. júlí í sumar. Búist við spennandi úrslitum í dag Íslandsmótið í Ásvallaug heldur áfram í dag og ber helst að nefna úrslitin í 200 fjórsundi karla kl. 17:26, 50 flugsund kvenna kl. 17:47. Þá er einnig búist við æsispennandi boðsundi í lok úrslitahlutans kl. 18:33. Keppni hófst fyrr í morgun með undanúrslitum og hefjast úrslitin kl. 16:30. Hægt er að fylgjast með beinu streymi frá keppni dagsins á vef SSÍ en bein útsending verður á RÚV 2 frá lokakeppnisdeginum á morgun sunnudag kl. 16:20.