Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Tækifæri fremur en ógn

  • What: AI adoption in the finance sector is seen as opportunity
  • Impact: Employees and leaders view AI as beneficial
Read Full Article →

Flestir starfsmenn í fjármálageiranum telja gervigreindina fremur tækifæri en ógn fyrir sig persónulega samkvæmt niðurstöðum launakönnunar Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja sem birt var undir loks síðasta árs. Um 79% starfsmannanna töldu hana skapa tækifæri fyrir sig. Þá töldu 86% prósent spunagreind hafa jákvæð áhrif á starf sitt, til að mynda í formi framleiðni og gæða. Því virðast bæði stjórnendur og starfsmenn í fjármálageiranum fremur sjá jákvæðar hliðar en neikvæðar á þróuninni. Um fjórir af hverjum fimm starfsmönnum í greininni nota jafnframt spunagreind á borð við ChatGPT, Gemini, Copilot og Claude í störfum sínum, meirihluti þeirra oft í viku og um þriðjungur daglega samkvæmt könnun Gallup fyrir stéttarfélagið. Sjá einnig Gervigreindin ógnar ekki starfsöryggi „Það er athyglisvert að bæði stjórnendur og starfsmenn í fjármálageiranum virðast fremur sjá tækifæri en ógnun í þessari þróun. Það er einnig athyglisvert að fleiri fjármálafyrirtæki stefna á að fjölga fólki starfsfólki fremur en að fækka á næstu árum,“ segir Heiðrún Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .

Share this article