Innlent | Morgunblaðið | 29.3.2026 | 8:00 Vegum breytt fyrir vindmyllurnar Skip á vegum framleiðandans Enercon flytur myllurnar til landsins. Spaðarnir eru 70 metra langir. Ljósmynd/Enercon Sigtryggur Sigtryggsson [email protected] Setja bókamerki Fram undan eru mestu þungaflutningar í sögu Íslands þegar Landsvirkjun flytur vindmyllur frá Þorlákshöfn upp að Vaðöldu á Þjórsár- og Tungnaársvæðinu. Flutningsleiðin er um 130 kílómetrar og liggur um fimm sveitarfélög: Árborg, Ölfus, Flóahrepp, Ásahrepp og Rangárþing ytra. Til þess að tryggja flutningsleiðina þarf að ráðast í vegabætur á alls 11 stöðum. Flutningarnir verða í tveimur áföngum, árin 2026 og 2027, og taka um 7 til 9 vikur hvort skipti. Fyrirhugað er að fyrri áfangi flutninga hefjist í byrjun maí árið 2026. Heildarfjöldi ferða verður á bilinu 300-400, þar sem gera má ráð fyrir 13 leyfisskyldum ferðum fyrir hverja vindmyllu. Lengsti farmurinn verður 70 metra spaðar og fara þarf 84 ferðir með þá. Landsvirkjun samdi við þýska vindmylluframleiðandann Enercon um kaup, uppsetningu og rekstur á 28 vindmyllum sem settar verða upp við Vaðöldu. Sérhæfð fyrirtæki Enercon hefur gert samninga við norska fyrirtækið Bergen Spesial Transport AS og íslenska fyrirtækið ET ehf., sem eru undirverktakar hjá Bergen, um flutning vindmyllubúnaðarins innanlands. Fyrirtækin eru sérhæfð í mjög stórum og flóknum þungaflutningum. Hér á eftir má sjá yfirlit yfir þær vegbætur sem ráðist verður í á vegum á Suðurlandi: 1. Nesbraut (Ölfus): Við Nesbraut í Þorlákshöfn þarf að breikka akstursrými í beygjum og taka niður ljósastaura og skilti. 2. Laxabraut (Ölfus): Við Laxabraut í Þorlákshöfn þarf að taka niður ljósastaura í beygjum. 3. Laxabraut / Suðurstrandarvegur (Ölfus): Á þessum gatnamótum þarf að breikka akstursrými í beygju. Taka þarf niður skilti og ljósastaura. 4. Suðurstrandarvegur / Þorlákshafnarvegur (Ölfus): Á þessum gatnamótum þarf að breikka akstursrými í beygju við hringtorg. Taka þarf niður skilti og ljósastaura. 5. Þorlákshafnarvegur / Eyrarbakkavegur (Ölfus): Á þessum gatnamótum þarf að breikka akstursrými í beygju og taka niður skilti. 6. Eyrarbakkavegur / Votmúlavegur (Árborg): Á þessum vegamótum þarf að auka beygjuradíus. Útbúið verður auka akstursrými fram hjá vegamótunum og reiðstígur gerður meðfram breikkuninni. Taka þarf niður skilti, fjarlægja girðingu og setja nýja. 7. Votmúlavegur / Gaulverjabæjarvegur (Árborg): Við þessi vegamót þarf að breikka akstursrými í beygju. Taka þarf niður skilti. 8. Gaulverjabæjarvegur / Suðurlandsvegur (Árborg/Flóahreppur): Við þessi vegamót þarf að breikka akstursrými í beygju og aðlaga reiðstíga. Einnig þarf að taka niður skilti. 9. Landvegamót (Rangárþing ytra): Við Landvegamót þarf að breikka aksturssvæði við hringtorg. Framkvæmdin er að öllu leyti innan veghelgunarsvæðis Vegagerðarinnar. Taka þarf niður skilti og ljósastaura. 10. Landvegur (Rangárþing ytra): Á Landvegi er unnið að endurbótum á um 13 km kafla þar sem lagt verður bundið slitlag. Jafnframt stendur yfir bygging brúar yfir farveg leysingarvatns, Helliskvísl, nærri Ísakoti. 11. Landvegur / Sprengisandsleið (Rangárþing ytra): Við þessi vegamót þarf að breikka akstursrými í beygjum og taka niður skilti. Ljósmynd/Enercon Unnið kvöld og nætur Vegagerðin hefur annast kaup á landi vegna þessara breytinga og sótt um framkvæmdaleyfi til sveitarfélaga. Skilti verða tekin niður fyrir hverja flutninga og sett upp aftur um leið og þeir eru farnir hjá. Fram kemur á heimasíðu Landsvirkjunar að flutningarnir verða að jafnaði sex kvöld og nætur vikunnar en hlé verður tekið aðfaranótt sunnudags. Meðalhraði flutningslestar er áætlaður um 30 km/klst. sem þýðir að ferðatími frá Þorlákshöfn í Vaðölduver verður yfirleitt 4-6 klukkustundir. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Fyrstu skilaboð Maduros úr fangelsinu Vegum breytt fyrir vindmyllurnar Syrgja nítján ára hetju „Af fimmtán vinsælustu áfangastöðunum eru margir óttalega týpískir“ Fimm drepnir í árás á íranska hafnarborg Umræðan Skaði og Njörður Orkuöryggi heimsins í uppnámi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Reyni að koma nemendum til manns Betri staða mjólkinni að þakka Komu rútu til aðstoðar í blindhríð „Það er að byrja að snjóa og bæta í vind“ Mest lesið Í gær Í vikunni Rúta hafnaði utan vegar á heimavelli Staðfesting á leyfi fósturforeldra ekki til staðar Eftirlýstur og brjálaður í miðbænum Sjöfaldur pottur um næstu helgi Guðmundur Ingi hallar sér að Flokki fólksins Lokun aflétt á Kjalarnesi Mikil ásókn í stríðsbækur Snjóflóðið féll á hóp vélsleðamanna Slydduél en snjókoma fyrir norðan og austan Reyni að koma nemendum til manns Ísland yrði eitt ríkasta landið í ESB Erfið akstursskilyrði eftir klukkan 16 Vegir frá borginni lokaðir eða á óvissustigi Lögbann á veiðimenn sem brutu 30 lása Engin blóðtengsl við fjölskyldusameiningu Fannst heill á húfi eftir snjóflóð á Ólafsfirði Ráðist á vagnstjóra og vagninum stolið Icelandair aflýsir Bandaríkjaflugi Gæslan aðstoðaði lögregluna á Egilsstöðum Hætta hringsóli á bílastæðum Fylgstu með lægðinni ganga yfir Hamas-liðar á Höfðatorgi Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn Ráðist á vagnstjóra og vagninum stolið „Ég er harmi slegin“ Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Daði Már fékk uppsagnarbréf Vara við blindbyl Vara við suðaustan hríðarbyl: Samgöngutruflanir líklegar Nýjast á mbl.is » Fyrstu skilaboð Maduros úr fangelsinu Vegum breytt fyrir vindmyllurnar Syrgja nítján ára hetju „Af fimmtán vinsælustu áfangastöðunum eru margir óttalega týpískir“ Fimm drepnir í árás á íranska hafnarborg Umræðan Skaði og Njörður Orkuöryggi heimsins í uppnámi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Eftirlýstur og brjálaður í miðbænum Rúm hundrað bíða enn eftir plássi Vegum breytt fyrir vindmyllurnar Fannst heill á húfi eftir snjóflóð á Ólafsfirði Mest lesið Í gær Í vikunni Rúta hafnaði utan vegar á heimavelli Staðfesting á leyfi fósturforeldra ekki til staðar Eftirlýstur og brjálaður í miðbænum Sjöfaldur pottur um næstu helgi Guðmundur Ingi hallar sér að Flokki fólksins Lokun aflétt á Kjalarnesi Mikil ásókn í stríðsbækur Snjóflóðið féll á hóp vélsleðamanna Slydduél en snjókoma fyrir norðan og austan Reyni að koma nemendum til manns Ísland yrði eitt ríkasta landið í ESB Erfið akstursskilyrði eftir klukkan 16 Vegir frá borginni lokaðir eða á óvissustigi Lögbann á veiðimenn sem brutu 30 lása Engin blóðtengsl við fjölskyldusameiningu Fannst heill á húfi eftir snjóflóð á Ólafsfirði Ráðist á vagnstjóra og vagninum stolið Icelandair aflýsir Bandaríkjaflugi Gæslan aðstoðaði lögregluna á Egilsstöðum Hætta hringsóli á bílastæðum Fylgstu með lægðinni ganga yfir Hamas-liðar á Höfðatorgi Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn Ráðist á vagnstjóra og vagninum stolið „Ég er harmi slegin“ Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Daði Már fékk uppsagnarbréf Vara við blindbyl Vara við suðaustan hríðarbyl: Samgöngutruflanir líklegar