Security News

Cybersecurity news aggregator

LOW News RÚV

„Þetta er það sem fólk þjálfar sig fyrir“

  • What: Rescue teams responded to numerous calls due to severe weather
  • Impact: Snow and storms caused disruptions in several regions
Read Full Article →

Björgunarsveitir sinntu fjölmörgum útköllum vegna foktjóns og ferðalanga sem sátu fastir í illviðrinu sem gekk yfir landið í nótt. Upplýsingafulltrúi Landsbjargar segir álag undanfarinna vikna ekki vera meira en gengur og gerist. Gular viðvaranir tóku gildi síðdegis vegna suðaustan hvassviðris eða storms og snjókomu á höfuðborgarsvæðinu, Suðurlandi, Suðausturlandi, Faxaflóa, Breiðafirði og á Vestfjörðum. Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, segir björgunarsveitir á Patreksfirði og á Rauðasandi meðal annars hafa verið kallaðar út. Þá sátu rúta og bíll föst eftir að lítið snjóflóð féll í Raknadal og lokaði veginum. Ferðalöngum var komið í öruggt skjól og lauk aðgerðum á þriðja tímanum í nótt. Jón Þór segir aðstæður hafa verið rólegri á höfuðborgarsvæðinu. „Veðrið á höfuðborgarsvæðinu gerði svo sem engan usla í gær en það var víða á vesturhluta landsins sem fólk þurfti á aðstoð björgunarsveita að halda. Það varð foktjón í Garðinum á Akranesi og á Hvammstanga talsvert og í Grindavík. Og svo voru ferðalangar bara í vandræðum vegna færðar og skyggnis mjög víða.“ Ferðalangar í vandræðum nærri Flateyri Björgunarsveitin Ingunn á Laugarvatni og Hjálparsveitin Tintron í Grímsnesinu fóru til aðstoðar ferðalöngum á Þingvallavegi og í Grafningi í gær. Þar voru nokkrir bílar fastir og var fólkinu komið í gistingu á Selfossi en einhverja bíla þurfti að skilja eftir. Við Flateyrarafleggjara voru ferðalangar í vandræðum og fóru þrír björgunarmenn á einum björgunarsveitarbíl frá Björgunarfélagi Ísafjarðar til aðstoðar. Loks fór Björgunarsveitin Klakkur úr Grundarfirði með sjúkrabíl til að aðstoða við sjúkraflutninga vegna ófærðar. Aðstæðurnar endurspegli mikilvægi björgunarsveita um land allt Jón Þór segir öll útköll gærdagsins hafa gengið vel fyrir sig og að þeim hafi lokið á tiltölulega skömmum tíma. Honum er ekki kunnugt um að nein slys hafi orðið á fólki. Spurður hvort slæm veðurskilyrði og tilheyrandi útköll björgunarsveita um allt land skapi mikið álag segir Jón að björgunarsveitarmenn séu öllu vanir. „Ég held þú munir seint finna félaga í björgunarsveitunum sem að flokka þetta undir álag. Þetta er það sem að fólk þjálfar sig fyrir og er í þessu starfi til þess að sinna akkúrat þessu. Ég held það sé frekar á hinn veginn, að þegar lítið er um útköll þá kvarta menn.“ „Enn og aftur sýna þessar aðstæður okkur hversu mikilvægt það er að við eigum nítíu og þrjár björgunarsveitir staðsettar þar sem þær koma mest að gagni,“ segir Jón Þór.

Share this article