- What: Hafnarfjörður's projects focus on underwater drones and training
- Impact: Educational and technical development in the maritime sector
Stærsti hluti verkefna Hampiðjunnar Neskaupstað tengist uppsjávarskipum. En verkefnin eru fjölbreytt og botntroll mikilvægur hluti starfseminnar. Í nýlegri færslu Hampiðjunnar segir að nóg hafi verið að gera undanfarið í botntrollum og pokum. Nýlega var gert nýtt troll fyrir Birting og vorum í vikulok var nýtt troll fyrir Blæng klárað. Í báðum tilfellum er um H-Toppa að ræða sem hannaðir eru af Hermanni Guðmundssyni hjá Hampiðjunni á Akureyri í samvinnu við skipstjóra skipanna. Verkefnin eru fjölbreytt. „Nýlega vorum við með neta- og sjóvinnunámskeið fyrir þátttakendur í smáskipanámi, til skipstjórnar á bátum undir 15 metrum, sem Verkmenntaskóli Austurlands heldur. Við höfum áður haldið svipuð námskeið fyrir sjómenn.“