Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Tudor hættur hjá Tottenham eftir 44 daga í starfi

  • What: Tottenham manager changes after short tenure
  • Impact: Club management update
Read Full Article →

Króatinn Igor Tudor hefur látið af störfum sem knattspyrnustjóri enska úrvalsdeildarliðsins Tottenham eftir aðeins 44 daga í starfi. Tudor var ráðinn tímabundið eftir að Daninn Thomas Frank var rekinn þann 14. febrúar. Igor Tudor í 3-0 tapleik gegn Nottingham Forest sem reyndist síðasti leikur liðsins undir hans stjórn.AP / Dave Shopland Tudor stýrði Tottenham í sjö leikjum og tapaði liðið fimm þeirra. Tottenham er í 17. sæti ensku úrvalsdeildarinnar, einu stigi frá fallsæti þegar sjö umferðum er ólokið í deildinni. Í yfirlýsingu frá Tottenham segir að ákvörðunin hafi verið sameiginleg og að tilkynnt verði um annan stjóra á næstunni.

Share this article