Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Samstarf léttir álag á bráðamóttöku

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 30.3.2026 | 6:00 Samstarf léttir álag á bráðamóttöku Landspítalinn í Fossvogi. mbl.is/Ómar Óskarsson Dóra Ósk Halldórsdóttir [email protected] Setja bókamerki Sjúkraþjálfarar á bráðamóttöku og tengdum deildum Landspítala hafa hrundið af stað nýju samvinnuverkefni með sjúkraþjálfurum á stofum sem miðar að því að létta álag á bráðamóttöku, fækka ónauðsynlegum innlögnum og auðvelda útskriftir tiltekinna sjúklingahópa. „Þetta verkefni hófst að frumkvæði sjúkraþjálfara á Landspítalanum sem leituðu til okkar í félaginu og við ákváðum að fylgja þessu verkefni eftir og koma á formlegu samtali um þessi mál, enda mjög góð hugmynd og verðug,“ segir Gunnlaugur Briem, formaður Félags sjúkraþjálfara. Gunnlaugur segir að verkefnið sé svar við þeirri stöðu sem skapast hefur á bráðamóttöku undanfarna mánuði og skorti á hjúkrunarrýmum. „Það hefur verið skortur á lausnum og við bregðumst við þessu ákalli kollega okkar á spítalanum. Við sjáum að með auknu samstarfi er hægt að greina fyrr þá einstaklinga sem eru í aukinni hættu á endurkomu eða innlögn og tryggja þeim hraðari aðgang að viðeigandi þjónustu,“ segir hann og bætir við að forgangsröðun ákveðinna áhættuhópa sem þurfa aðstoð snemma geti minnkað þörf á dýrri sjúkrahúsinnlögn þegar fram líða stundir. Forgangsraða þjónustu „Við komum með þessu verkefni á sértækum forgangi fyrir ákveðna skjólstæðingahópa. Það eru sérstaklega þeir hópar sem eru í hættu á því að þurfa að leggjast inn, ef þeim er ekki sinnt strax, eða eru í hættu með ítrekaðar endurkomur. Þá erum við t.d. að tala um aldraða sem hafa miklar færniskerðingar, eða t.d. einstaklinga sem koma inn á bráðamóttöku með mikil verkjavandamál og þurfa að komast í þjónustu strax,“ segir hann. „Við ákváðum líka að víkka verkefnið aðeins út og og taka líka með þá sem eru með vægari tilfelli af heilablóðföllum,“ segir hann. „Þeir einstaklingar eiga mikið undir því að fá meðferð um leið og aðstæður leyfa. Fyrstu þrír mánuðirnir eru mikilvægustu mánuðirnir í endurhæfingu fyrir fólk eftir slík áföll,“ segir hann og bendir á að forgangur slíkra tilfella myndi spara mikið fyrir heilbrigðiskerfið, því að þjónustuþörfin aukist ef ekki er tekið á málinu strax. Gunnlaugur segir að nú sé verið að skilgreina forgangshópa, samræma verkferla og bæta upplýsingaflæði milli Landspítala og sjúkraþjálfara á stofum áður en verkefninu verði formlega ýtt úr vör um mánaðamótin. Hann segir að áætlað sé að verkefnið geti náð til allt að 30-40 einstaklinga í hverjum mánuði og muni þannig hafa veruleg jákvæð áhrif á sjúklinga og aðstandendur þeirra, auk þess að létta álag á Landspítalanum. Nú þegar hafa fjölmargar sjúkraþjálfunarstofur lýst yfir þátttöku og er undirbúningur kominn vel af stað. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Flóttamaður skotinn til bana eftir sjö mánaða leit BAFTA-verðlaunahafi í Hofi Víða skúrir eða él Samstarf léttir álag á bráðamóttöku Almenningur borgar skattahækkanir Umræðan Hallalaust í boði heimilanna Á dagskrá: Stríð við Íran og aðild að „Evrópu“ Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Segjast vilja semja en undirbúa landgönguárás Aldrei bar skugga á okkar vináttu Fljúgandi skíði á þjóðveginum Almenningur borgar skattahækkanir Mest lesið Í gær Í vikunni Hópur ferðamanna setti allt í vasana Alvarlegt slys: Ekið á barn og fullorðinn „Það harma náttúrulega allir þessa stöðu“ Borgin greiddi um 14 milljónir fyrir veislur Afleit staða til að eiga við faraldur Allrólegu veðurfari spáð í dymbilvikunni Þyrlan kölluð út vegna umferðarslyss Reynisfjara hættulegri en ferðamenn jafnfífldjarfir Versluninni Ríteil Kids lokað Flugi til Parísar aflýst Alvarlegt slys: Ekið á barn og fullorðinn Þyrlan kölluð út vegna umferðarslyss Flugi til Parísar aflýst Eftirlýstur og brjálaður í miðbænum Aldrei bar skugga á okkar vináttu Versluninni Ríteil Kids lokað Rúta hafnaði utan vegar á heimavelli Fljúgandi skíði á þjóðveginum Cohen var hinn fullkomni gestgjafi Snjóflóð féll á veginn og rúta í vandræðum Fylgstu með lægðinni ganga yfir Hamas-liðar á Höfðatorgi Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn Ráðist á vagnstjóra og vagninum stolið „Ég er harmi slegin“ Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Daði Már fékk uppsagnarbréf Vara við suðaustan hríðarbyl: Samgöngutruflanir líklegar Alvarlegt slys: Ekið á barn og fullorðinn Munu þurfa frá að hverfa á Akureyri Nýjast á mbl.is » Flóttamaður skotinn til bana eftir sjö mánaða leit BAFTA-verðlaunahafi í Hofi Víða skúrir eða él Samstarf léttir álag á bráðamóttöku Almenningur borgar skattahækkanir Umræðan Hallalaust í boði heimilanna Á dagskrá: Stríð við Íran og aðild að „Evrópu“ Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Rannsaka netárásir á vefsíður ESB Fljúgandi skíði á þjóðveginum Ársæll hættur störfum: Ráðherra talar ekki við mig Afleit staða til að eiga við faraldur Mest lesið Í gær Í vikunni Hópur ferðamanna setti allt í vasana Alvarlegt slys: Ekið á barn og fullorðinn „Það harma náttúrulega allir þessa stöðu“ Borgin greiddi um 14 milljónir fyrir veislur Afleit staða til að eiga við faraldur Allrólegu veðurfari spáð í dymbilvikunni Þyrlan kölluð út vegna umferðarslyss Reynisfjara hættulegri en ferðamenn jafnfífldjarfir Versluninni Ríteil Kids lokað Flugi til Parísar aflýst Alvarlegt slys: Ekið á barn og fullorðinn Þyrlan kölluð út vegna umferðarslyss Flugi til Parísar aflýst Eftirlýstur og brjálaður í miðbænum Aldrei bar skugga á okkar vináttu Versluninni Ríteil Kids lokað Rúta hafnaði utan vegar á heimavelli Fljúgandi skíði á þjóðveginum Cohen var hinn fullkomni gestgjafi Snjóflóð féll á veginn og rúta í vandræðum Fylgstu með lægðinni ganga yfir Hamas-liðar á Höfðatorgi Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn Ráðist á vagnstjóra og vagninum stolið „Ég er harmi slegin“ Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Daði Már fékk uppsagnarbréf Vara við suðaustan hríðarbyl: Samgöngutruflanir líklegar Alvarlegt slys: Ekið á barn og fullorðinn Munu þurfa frá að hverfa á Akureyri

Share this article