Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

„Þetta fólk var ekki að gera þetta í fyrsta skipti“

  • What: A theft occurred at a store in Freysnes, Iceland
  • Impact: Local community and store staff were affected
Read Full Article →

Innlent | mbl | 30.3.2026 | 13:15 „Þetta fólk var ekki að gera þetta í fyrsta skipti“ Þjófar létu greipar sópa í söluskálanum Freysnesi í gær. Samsett mynd/Eggert/Freysnes Sólrún Lilja Ragnarsdóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Ferðamenn á Íslandi Telja ferðamenn örugga við jökulinn Rúður brotnuðu í tugum bíla við Hvalnes Ræða hættumerki í íslensku hagkerfi Kínverskum ferðamönnum fjölgaði verulega Bar upp bónorð við Goðafoss » Fleiri tengdar fréttir Starfsfólk í söluskálanum Freysnesi í Skaftafelli hringdi í neyðarlínuna í gær og tilkynnti um þjófnað eftir að ferðamenn létu greipar sópa í söluskálanum og fylltu vasana af matvöru, sælgæti og minjagripum. Sú tilkynning skilaði sér þó ekki til lögreglunnar á Suðurlandi. Aðalvarðstjóri segist ekki hafa skýringar á því en að betra hefði verið að fá upplýsingar um atvikið strax í gær svo hægt hefði verið að hafa strax hendur í hári þjófanna. Eyrún Halla Jónsdóttir, starfsmaður söluskálans, gagnrýnir í samtali við mbl.is að lögreglan hafi ekki brugðist við í gær. Það hafi heldur ekki verið gert þegar tilkynnt var um þjófnað fyrir um mánuði síðan. Þá var líka um ferðamenn að ræða. Í hvorugt skipti hafi lögreglan brugðist við með því að koma strax á staðinn eða óska eftir myndefni. Frétt af mbl.is Hópur ferðamanna setti allt í vasana „Sannarlega betra að fá tilkynninguna“ Það var móðir Eyrúnar, Anna María Ragnarsdóttir, eigandi söluskálans og Hótels Skaftafells, sem vakti athygli á málinu í Facebook-hópnum Bakland ferðaþjónustunnar í gær. Í samtali við mbl.is í gær gagnrýndi hún viðbragðsleysi lögreglu. Garðar Már Garðarsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi, segir aftur á móti að málið hafi ekki borist inn á þeirra borð í gær. Tilkynningin í gegnum neyðarlínuna skilaði sér ekki til embættisins þrátt fyrir að hringt hafi verið inn og tilkynnt um þjófnað í umdæminu. „Við fengum ekki boð, lögreglumenn hjá embættinu, en ég get ekki svarað fyrir það hvar þetta stoppaði. Það var hringt á neyðarlínu en ég get ekki skýrt af hverju þetta var ekki kallað til okkar,“ segir Garðar í samtali við mbl.is . Spurður hvort það sé ekki skrýtið að lögreglan á Suðurlandi hafi ekki fengið tilkynninguna, viðurkennir hann að svo sé. „Það er sannarlega betra að fá tilkynninguna. Öðruvísi getum við ekki brugðist við.“ Ekki óskað eftir efni úr öryggismyndavélum Eyrún segir þetta ekki snúast um upphæðir, heldur frekar um að þjófarnir komist ekki upp með að stela og fái ekki tækifæri til að halda iðju sinni áfram. Því verði lögreglan að taka á málinu. „Það var kannski ekki verið að stela fyrir háar upphæðir í gær en þetta snýst um að lögreglan sýnir þessu ekki áhuga. Fyrir 20 árum síðan kom lögreglan að sunnan og austan og náði fólkinu og sýndi þessu áhuga,“ segir Eyrún og vísar jafnframt til annars atviks fyrr á þessu ári. „Það var stolið af okkur fyrir mánuði síðan en lögreglan hefur ekki enn komið og skoðað öryggismyndavélar. Það kom heldur enginn í gær. Maður upplifir ekki öryggi. Þarna kemst fólk upp með þetta og getur sagt samlöndum sínum að það sé auðvelt að stela hérna,“ segir Eyrún, en eftir að blaðamaður ræddi við hana setti lögreglan sig í samband við staðarhaldara í Freysnesi. „Þetta er komið inn á okkar borð núna. Við erum við upplýsingaöflun og öðru varðandi þetta,“ segir Garðar. „Best hefði verið að fá þetta strax og að geta brugðist strax við og haft afskipti af viðkomandi aðilum,“ bætir hann við og undirstrikar að lögreglan sinni löggæslu alla daga. Líka um helgar. Gengið beint til verks Eyrún bendir á að í athugasemdum við færslu móður hennar á Facebook hafi fleiri lýst svipaðri reynslu. Þá sé þetta ekki í fyrsta skipti sem stolið sé af þeim, en þetta sé í fyrsta skipti sem sjáist til þjófanna. „Það ætti að vera hægt að ná þeim. Í gær höfðum við bílnúmer og þetta var stór hópur sem auðvelt hefði verið að finna á þjóðveginum. Það ætti ekki að vera erfitt í dag heldur.“ Eyrún hefði að minnsta kosti viljað að lögreglan hefði sýnt viðleitni með því að koma á staðinn og fá efni úr öryggismyndavélum. Hvað sem hefði verið gert við þær upplýsingar. „Ef þetta hefði gerst á Ártúnshöfða þá hefði lögreglan örugglega komið strax. Starfsfólkið okkar er mjög reitt yfir því að þau komist upp með þetta.“ Eyrún segir að ferðamennirnir í gær hafi verið frá Suður-Evrópu eins og þeir sem voru staðnir að verki fyrir mánuði síðan. „Þetta fólk var ekki að gera þetta í fyrsta skipti,“ segir Eyrún. Það hafi verið nokkuð ljóst að fólkið hafi vitað hvað það var að gera og gengið beint til verks. „Þau tóku bara það sem þau langaði í.“ Svona mál komi í bylgjum Það var leiðsögumaður sem stóð fólkið að verki og lét starfsmann vita og reyndi vaktstjóri að fara á eftir fólkinu. Það komst hins vegar undan á bílum en líkt og fram kom í gær var fólkið í samfloti á nokkrum húsbílum. Garðar segir að lögreglan fái öðru hverju tilkynningar um brotahópa á svæðinu. „Þegar það berst til okkar reynum við eftir bestu getu að bregðast við og hafa hendur í hári viðkomandi.“ Spurður hvort brotahópar bendi jafnvel öðrum á staði þar sem auðvelt sé að láta greipar sópa, segist hann ekki geta svarað til um það. Hins vegar komi svona mál oft í bylgjum. „Þegar það fer að bera á svona atvikum kemur oft holskefla í kjölfarið. Eins og við þekkjum einna best á Gullfossi og Geysissvæðinu þar sem mikið er af ferðamönnum.“ Tengdar fréttir Ferðamenn á Íslandi Telja ferðamenn örugga við jökulinn Rúður brotnuðu í tugum bíla við Hvalnes Ræða hættumerki í íslensku hagkerfi Kínverskum ferðamönnum fjölgaði verulega Bar upp bónorð við Goðafoss » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » „Þetta fólk var ekki að gera þetta í fyrsta skipti“ Nánustu vinirnir voru ósáttir fyrst „Skítaveður allan túrinn“ Grínið togaði í Jakob sem segir bless Hótar gjöreyðileggingu raforkuvera og olíulinda Umræðan Hallalaust í boði heimilanna Sýnið á ESB-spilin fyrir fram en ekki eftir á Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fljúgandi skíði á þjóðveginum Segja fyrirsætuskrifstofur hafa unnið með Epstein Alvarlegt slys: Ekið á barn og fullorðinn Afleit staða til að eiga við faraldur Mest lesið Í gær Í vikunni Hópur ferðamanna setti allt í vasana Fá ekki leyfi til að rífa braggann Lögreglan lýsir eftir manni og birtir myndir Samstarf léttir álag á bráðamóttöku Alvarlegt slys: Ekið á barn og fullorðinn Slysið komið á borð rannsóknarnefndar Almenningur borgar skattahækkanir Gistiheimili í húsi ríkislögreglustjóra „Það harma náttúrulega allir þessa stöðu“ Mannslát á Kársnesi: Neitar sök Alvarlegt slys: Ekið á barn og fullorðinn Þyrlan kölluð út vegna umferðarslyss Flugi til Parísar aflýst Eftirlýstur og brjálaður í miðbænum Aldrei bar skugga á okkar vináttu Versluninni Ríteil Kids lokað Rúta hafnaði utan vegar á heimavelli Fljúgandi skíði á þjóðveginum Cohen var hinn fullkomni gestgjafi Snjóflóð féll á veginn og rúta í vandræðum Fylgstu með lægðinni ganga yfir Hamas-liðar á Höfðatorgi Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn Ráðist á vagnstjóra og vagninum stolið „Ég er harmi slegin“ Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Alvarlegt slys: Ekið á barn og fullorðinn Daði Már fékk uppsagnarbréf Vara við suðaustan hríðarbyl: Samgöngutruflanir líklegar Munu þurfa frá að hverfa á Akureyri Nýjast á mbl.is » „Þetta fólk var ekki að gera þetta í fyrsta skipti“ Nánustu vinirnir voru ósáttir fyrst „Skítaveður allan túrinn“ Grínið togaði í Jakob sem segir bless Hótar gjöreyðileggingu raforkuvera og olíulinda Umræðan Hallalaust í boði heimilanna Sýnið á ESB-spilin fyrir fram en ekki eftir á Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Alvarlegt slys: Ekið á barn og fullorðinn Lögbann á umferð um einkaveg við Iðu „Þetta fólk var ekki að gera þetta í fyrsta skipti“ Fyrirhuguð malbikun dugir ekki Mest lesið Í gær Í vikunni Hópur ferðamanna setti allt í vasana Fá ekki leyfi til að rífa braggann Lögreglan lýsir eftir manni og birtir myndir Samstarf léttir álag á bráðamóttöku Alvarlegt slys: Ekið á barn og fullorðinn Slysið komið á borð rannsóknarnefndar Almenningur borgar skattahækkanir Gistiheimili í húsi ríkislögreglustjóra „Það harma náttúrulega allir þessa stöðu“ Mannslát á Kársnesi: Neitar sök Alvarlegt slys: Ekið á barn og fullorðinn Þyrlan kölluð út vegna umferðarslyss Flugi til Parísar aflýst Eftirlýstur og brjálaður í miðbænum Aldrei bar skugga á okkar vináttu Versluninni Ríteil Kids lokað Rúta hafnaði utan vegar á heimavelli Fljúgandi skíði á þjóðveginum Cohen var hinn fullkomni gestgjafi Snjóflóð féll á veginn og rúta í vandræðum Fylgstu með lægðinni ganga yfir Hamas-liðar á Höfðatorgi Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn Ráðist á vagnstjóra og vagninum stolið „Ég er harmi slegin“ Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Alvarlegt slys: Ekið á barn og fullorðinn Daði Már fékk uppsagnarbréf Vara við suðaustan hríðarbyl: Samgöngutruflanir líklegar Munu þurfa frá að hverfa á Akureyri

Share this article