Héraðsdómur Reykjavíkur vísaði í dag frá máli Samkeppniseftirlitsins (SKE) á hendur Samskipum Holding B.V. o.fl. frá dóminum. Eftirlitið höfðaði málið m.a. í því skyni að fá hnekkt þeirri niðurstöðu áfrýjunarnefndar samkeppnismála að lækka fjárhæð stjórnvaldssektar sem Samskipum var gert að greiða vegna ólögmæts samráðs við Eimskip úr 4,2 milljörðum króna í 2,4 milljarða króna. „Samkeppniseftirlitið telur að sakarefni málsins sé fordæmalaust að umfangi og að nauðsynlegt hafi verið að reifa málið með fullnægjandi hætti í stefnu svo það teldist ekki vanreifað. Samkeppniseftirlitið hyggst því kæra úrskurð héraðsdóms til Landsréttar,“ segir í tilkynningu á vef SKE. Í niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur kom meðal annars fram að lýsing Samkeppniseftirlitsins á málsástæðum hans fæli heilt á litið í sér „óhóflegan skriflegan málflutning í brýnni andstöðu við bæði meginreglu einkamálaréttarfars um munnlega málsmeðferð og ákvæði e-liðar 1. mgr. 80. gr. laga nr. 91/1991“. „Með þessu er ekki sagt að stefna í málinu gæti ekki verið lengri en almennt gengur og gerist, enda er um viðamikið mál að ræða, heldur að stefnandi hefur að þessu leytifarið út fyrir öll mörk. Þessir annmarkar myndu einir og sér leiða til þess að vísa bæri málinu frá dómi án kröfu.“