- What: FCC bans sale of foreign-made network equipment
- Impact: U.S. consumers may face restrictions on certain network devices
Innlent | Morgunblaðið | 30.3.2026 | 17:20 Áhrif netárásar væru á við sprengju Deilt er um hvort treysta megi fjarskiptabúnaði frá Kína. AFP/Ng Han Guan Ásgeir Ingvarsson [email protected] Setja bókamerki Greinin birtist upphaflega í Morgunblaðinu 30. mars. Fjarskiptastofnun Bandaríkjanna (FCC) ákvað í síðustu viku að banna sölu til almennings á netbeinum sem framleiddir eru utan Bandaríkjanna. Netbeinar, sem oft eru í daglegu tali kallaðir módem, tengja heimili og fyrirtæki við netið og telur FCC að ekki sé hægt að tryggja öryggi þessa búnaðar ef hann er framleiddur annars staðar en í Bandaríkjunum. Er hætta talin á að óprúttnir aðilar geti komið fyrir glufum í vélbúnaði eða hugbúnaði netbeinanna sem þeir svo geti notað til að gera netárásir af ýmsu tagi. Í ákvörðun sinni vísar FCC sérstaklega til nýlegra og alvarlegra árása, sem raktar hafa verið til tölvuþrjóta með tengsl við kínversk stjórnvöld, þar sem bandarískir innviðir voru skotmarkið. Ekki er lagt bann við notkun þeirra erlendu netbeina sem bandarískur almenningur á nú þegar, og eins er í boði að fá tímabundnar undanþágur fyrir innflutningi og sölu netbeina sem ekki eru að fullu framleiddir innan Bandaríkjanna. Ákvörðunin nú er sú nýjasta í vegferð sem bandarísk stjórnvöld hófu árið 2021 þegar þau lögðu bann við notkun fjarskipta-, eftirlits- og netbúnaðar frá kínversku framleiðendunum Huawei, ZTE, Hytera, Hikvision og Dahua. Þór Jes Þórisson Ómögulegt að sannreyna Þór Jes Þórisson hefur fylgst náið með þessari þróun en hann var framkvæmdastjóri tæknimála hjá Símanum í næstum tvo áratugi. Að sögn Þórs voru áströlsk yfirvöld fyrst til að benda á að netbúnaður frá Kína gæti valdið öryggishættu. „Árið 2018 var gefin út skýrsla í tengslum við innleiðingu 4G-tækni og var niðurstaðan sú að ekki væri hægt að fullyrða um öryggi kínverska búnaðarins. Var því sett bann á þann búnað og vísað til þess að ef til stríðsátaka kæmi gæti Ástralía verið í mjög viðkvæmri stöðu ef kínversk stjórnvöld hefðu bakdyraaðgang að búnaðinum og gætu t.d. slökkt á honum.“ Þór segir þessar áhyggjur ekki aðeins beinast að mögulegum njósna- og bakdyraviðbótum í vélbúnaðinum sjálfum, heldur gætu framleiðendur notað uppfærslur til að lauma inn skaðlegum kóða í þann hugbúnað sem net- og fjarskiptabúnaðurinn keyrir. „Um er að ræða svo flókinn hugbúnað, eins og í tilfelli farsímakerfa, þar sem hugbúnaðurinn getur verið mörg hundruð milljón línur af kóða á lengd og líklega ómögulegt að sannreyna í hvert skipti sem hugbúnaðurinn er uppfærður hvort eitthvað misjafnt leynist í kóðanum. Reynsla Bresku hlerunar- og fjarnjósnastofnunarinnar, GCHQ, af að sannreyna Huawei-hugbúnað og -vélbúnað í átta ár bendir til að þetta sé ómöguleiki.“ Loka á kínverskan búnað Í Ástralíu var farin sú leið að útiloka tiltekna kínverska framleiðendur frá útboðum vegna farsímainnviða. Skömmu síðar fór Nýja-Sjáland svipaða leið og síðar fylgdu fleiri lönd í kjölfarið. Er nú svo komið að auk Ástralíu og Nýja-Sjálands eru búnaði frá Kína, og í sumum tilvikum frá öðrum löndum, settar skorður í Bandaríkjunum og Kanada, Japan, Taívan, Indlandi og hjá fjölda Evrópuríkja. Í janúar greindu fjölmiðlar frá því að Evrópusambandið hygðist koma því til leiðar að þeim kínverska farsímakerfisbúnaði sem þegar er í notkun yrði smám saman skipt út í fjarskiptakerfum og öðrum viðkvæmum innviðum Evrópuríkja. „Bæði geta öryggisglufur boðið heim hættunni á njósnum en síðan er ekki hægt að útiloka að utanaðkomandi aðilar geti einfaldlega slökkt á þessum búnaði,“ segir Þór og undirstrikar að um meiri háttar röskun væri að ræða, enda varla til þeir innviðir sem ekki eru að einhverju leyti háðir því að vera tengdir netinu. Væri ekki nóg með að almenningur og viðbragðsaðilar gætu ekki lengur komist í samband við netið heldur gætu t.d. vatns- og orkuinnviðir farið úr skorðum. „Þarna er um að ræða nýjan átakaflöt og alveg hægt að líkja áhrifunum af umfangsmikilli netárás við það að varpa sprengju, miðað við þau lamandi áhrif sem slík netárás gæti haft á nettengda innviði.“ Að sögn Þórs er ekki endilega að því hlaupið fyrir bandaríska seljendur að finna netbeina sem fullnægja nýjustu kröfum FCC, og eru þau bandarísku fyrirtæki sem smíða netbeina að öllum líkindum háð aðfangakeðjum sem teygja anga sína til Kína og annarra landa. „Það má finna nokkur bandarísk félög sem framleiða netbeina, s.s. Cisco, Netgear, Google og Amazon, en það á við um þau – að miklu eða öllu leyti – að þó að hönnun búnaðarins fari fram í Bandaríkjunum þá fer sjálf samsetningin fram annars staðar og með íhlutum úr ýmsum áttum,“ útskýrir hann. „Þær undanþágur sem FCC mun veita virðast ganga út frá því að gefa þessum fyrirtækjum svigrúm til að færa framleiðsluna og aðfangakeðjurnar alfarið inn í Bandaríkin.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Frakkland U21 - Ísland U21, staðan er 1:1 Féll og lést fyrir landsleikinn Áhrif netárásar væru á við sprengju Haukur verðlaunaður fyrir magnaða frammistöðu Stöðvuðu eldflaug á leið til Tyrklands Umræðan Hallalaust í boði heimilanna Á dagskrá: Stríð við Íran og aðild að „Evrópu“ Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Almenningur borgar skattahækkanir Rannsaka netárásir á vefsíður ESB Fá ekki leyfi til að rífa braggann Reynisfjara hættulegri en ferðamenn jafnfífldjarfir Mest lesið Í gær Í vikunni Hópur ferðamanna setti allt í vasana Lögreglan lýsir eftir manni og birtir myndir Vitnum boðin áfallahjálp Fá ekki leyfi til að rífa braggann Slysið komið á borð rannsóknarnefndar Samstarf léttir álag á bráðamóttöku Alvarlegt slys: Ekið á barn og fullorðinn Þúsundir undirskrifta gegn kílómetragjaldi „Þetta fólk var ekki að gera þetta í fyrsta skipti“ Sterkar vindhviður og krefjandi akstursskilyrði Alvarlegt slys: Ekið á barn og fullorðinn Þyrlan kölluð út vegna umferðarslyss Flugi til Parísar aflýst Eftirlýstur og brjálaður í miðbænum Aldrei bar skugga á okkar vináttu Versluninni Ríteil Kids lokað Rúta hafnaði utan vegar á heimavelli Fljúgandi skíði á þjóðveginum Cohen var hinn fullkomni gestgjafi Snjóflóð féll á veginn og rúta í vandræðum Fylgstu með lægðinni ganga yfir Hamas-liðar á Höfðatorgi Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn Ráðist á vagnstjóra og vagninum stolið „Ég er harmi slegin“ Alvarlegt slys: Ekið á barn og fullorðinn Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Daði Már fékk uppsagnarbréf Vara við suðaustan hríðarbyl: Samgöngutruflanir líklegar Munu þurfa frá að hverfa á Akureyri Nýjast á mbl.is » Frakkland U21 - Ísland U21, staðan er 1:1 Féll og lést fyrir landsleikinn Áhrif netárásar væru á við sprengju Haukur verðlaunaður fyrir magnaða frammistöðu Stöðvuðu eldflaug á leið til Tyrklands Umræðan Hallalaust í boði heimilanna Á dagskrá: Stríð við Íran og aðild að „Evrópu“ Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Lögbann á umferð um einkaveg við Iðu Runólfur: Nú er lag að lækka kolefnisgjaldið Segja fyrirsætuskrifstofur hafa unnið með Epstein Reynisfjara hættulegri en ferðamenn jafnfífldjarfir Mest lesið Í gær Í vikunni Hópur ferðamanna setti allt í vasana Lögreglan lýsir eftir manni og birtir myndir Vitnum boðin áfallahjálp Fá ekki leyfi til að rífa braggann Slysið komið á borð rannsóknarnefndar Samstarf léttir álag á bráðamóttöku Alvarlegt slys: Ekið á barn og fullorðinn Þúsundir undirskrifta gegn kílómetragjaldi „Þetta fólk var ekki að gera þetta í fyrsta skipti“ Sterkar vindhviður og krefjandi akstursskilyrði Alvarlegt slys: Ekið á barn og fullorðinn Þyrlan kölluð út vegna umferðarslyss Flugi til Parísar aflýst Eftirlýstur og brjálaður í miðbænum Aldrei bar skugga á okkar vináttu Versluninni Ríteil Kids lokað Rúta hafnaði utan vegar á heimavelli Fljúgandi skíði á þjóðveginum Cohen var hinn fullkomni gestgjafi Snjóflóð féll á veginn og rúta í vandræðum Fylgstu með lægðinni ganga yfir Hamas-liðar á Höfðatorgi Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn Ráðist á vagnstjóra og vagninum stolið „Ég er harmi slegin“ Alvarlegt slys: Ekið á barn og fullorðinn Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Daði Már fékk uppsagnarbréf Vara við suðaustan hríðarbyl: Samgöngutruflanir líklegar Munu þurfa frá að hverfa á Akureyri