Security News

Cybersecurity news aggregator

MEDIUM Attacks RÚV

Úkraínsk stjórnvöld biðjast afsökunnar á drónum sem hröpuðu nærri Kouvola

  • What: Ukraine requests Finland to investigate drones near Kouvola
  • Impact: Cross-border security incident involving drones
Read Full Article →

Úkraínsk stjórnvöld hafa sent afsökunarbeiðni til Finna fyrir tvo dróna sem villtust af leið og hröpuðu nærri borginni Kouvola í suðaustur Finnalandi í gærmorgun. Samkvæmt fulltrúa frá úkraínska utanríkisráðinu var drónunum ekki undir neinum kringumstæðum ætlað að gera árásir á Finnland, líkt og fram kemur í frétt finnska ríkisútvarpsins YLE um málið. Talið er að drónarnir hafi villst af leið og endað í Finnlandi vegna truflana frá Rússlandi. Finnski flugherinn hefur staðfest að allavega annar dróninn hafi verið úkraínskur. Öðrum drónanum var fargað en hann reyndist vera með ósprunginn sprengjuodd. Úkraínski herinn hefur undanfarið gert nokkrar árásir á olíuinnviði í Rússlandi, nærri Finnlandsflóa innst í Eystrasaltinu. Höfnin í rússnesku borginni Ust-Luga skemmdist í einni slíkri árás, en höfnin er ein mikilvægasta höfn Rússa fyrir útflutning á olíu, kolum og áburði. Stjórnvöld í Finnlandi hafa ekki farið fram á það við úkraínsk stjórnvöld að úkraínski herinn dragi úr langdrægum drónaárásum sínum á olíuinnviði í Rússlandi.

Share this article