Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Hellisheiði lokaðist vegna umferðaróhapps

Read Full Article →

Vegurinn um Hellisheiði lokaðist um klukkan hálf sjö í morgun vegna umferðaróhapps. Fólk getur komið um Þrengslaveg og Sandskeið fram hjá lokuninni. Búið er að opna veginn í vesturátt en hann er enn lokaður til austurs. Krapi og snjóþekja er á mörgum vegum víða um land eftir að lægð með snjókomu gekk hratt yfir landið í morgun. Þæfingur er á Holtavörðuheiði og þungfært yfir Fróðárheiði. Þæfingur er á Vopnafjarðarheiði en snjóþekja og hálka víða á vegum á Norðausturlandi. Vegurinn um Dalsmynni er lokaður og ófært er um Öxi og Breiðdalsheiði. Fréttin hefur verið uppfærð. Hellisheiði. Safnmynd.RÚV / Ragnar Visage

Share this article