Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Í tveggja vikna gæsluvarðhald vegna umfangsmikils smygls

  • What: A man was arrested for smuggling drugs into Iceland
  • Impact: The individual is in custody while the case is investigated
Read Full Article →

Lögregla handtók mann við komu Norrænu til landsins á föstudag þegar fíkniefni fundust í bíl hans. Lögregla greinir ekki frá því hversu mikið magnið var en segir að það hafi verið umtalsvert. Fíkniefnin fundust við leit tollvarða og lögreglu í bíl mannsins. Hann var handtekinn og yfirheyrður. Lögregla fór þess á leit næsta dag að maðurinn yrði úrskurðaður í gæsluvarðhald í tvær vikur meðan smyglið væri rannsakað. Dómari við Héraðsdóm Austurlands féllst á þá kröfu. Maðurinn situr á bak við lás og slá í fangelsinu á Hólmsheiði meðan hann er í gæsluvarðhaldi. Hinn grunaði smyglari var ekki eini farþeginn í Norrænu á föstudag hvers Íslandsreisa fékk annan endi en lagt var upp með. Fjórum farþegum var vísað frá landi þar sem þeir uppfylltu ekki heimild til dvalar.

Share this article