- What: Abdullah Ocalan, founder of the PKK, called for the Kurdish people to be free
- Impact: Ocalan is imprisoned in Turkey and has been for over 20 years
Abdullah Ocalan, stofnandi aðskilnaðarsamtaka Kúrda, PKK, í Tyrklandi hefur farið fram á að fá að ávarpa almenning óhindrað. Hann hefur setið í fangelsi í Tyrklandi frá árinu 1999 og er haldið þar í einangrun. PKK lagði niður vopn í fyrra eftir að hafa barist fyrir sjálfstæði Kúrda í Tyrklandi í fjóra áratugi. Að minnsta kosti 50 þúsund manns létu lífið í átökunum. Kúrdar eru um 20% af íbúafjölda Tyrklands. Sendinefnd Jafnréttis og lýðræðisflokksins í Tyrklandi, DEM, sem er hliðhollur Kúrdum, heimsótti Ocalan í fangelsi á föstudag og birti í dag skilaboð frá honum. Þar ítrekar hann skuldbindingu sína við friðarferlið og kveðst telja mikilvægt fyrir sig að geta komið þeim skilaboðum á framfæri við almenning til að fyrirbyggja misskilning. Stjórnvöld í Tyrklandi verði að viðurkenna að engin skemmdarverkastarfsemi sé í gangi og að öryggi ríkisins sé ekki ógnað. Ocalan hvetur þingnefnd, sem sett var á laggirnar til að skilgreina framtíðarstöðu PKK og fyrrverandi liðsmanna samtakanna, til að koma „án tafar á fót heildstæðum og inngildandi lagaramma“.