Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Rúnar Kárason leggur skóna á hilluna

Read Full Article →

Handboltamaðurinn Rúnar Kárason hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna. Þessu greindi Rúnar frá á samfélagsmiðlum í dag. Rúnar hefur spilað með uppeldisfélagi sínu Fram síðan 2023 en þangað kom hann eftir tveggja ára dvöl í Vestmannaeyjum. Rúnar varð bikarmeistari og Íslandsmeistari með Fram á síðustu leiktíð en liðið datt úr leik í 8-liða úrslitum í gærkvöld eftir tap gegn FH. Í vetur tók Fram þátt í Evrópudeildinni og þar hafði Rúnar í nægu að snúast sem framkvæmdastjóri handknattleiksdeildar Fram. RÚV hitti Rúnar fyrir leik Fram og Porto í október og myndband frá þeirri heimsókn má sjá hér fyrir neðan. Rúnar Kárason, fyrrum landsliðsmaður í handbolta, hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna. Rúnar varð Íslands- og bikarmeistari með uppeldisfélagi sínu Fram á síðasta tímabili en liðið datt út í 8-liða úrslitum í gærkvöld. Í færslu sinni á samfélagsmiðlum greinir Rúnar frá því að fljótlega eftir að hann hóf að æfa handbolta hafi hann orðið staðráðinn í að komast í landsliðið og atvinnumennsku. Bæði markmiðin náðust en Rúnar spilaði 100 landsleiki fyrir Ísland, skoraði í þeim 243 mörk og lék í atvinnumennsku bæði í Þýskalandi og Danmörku frá 2009 til 2021. Meðal liða sem Rúnar spilaði fyrir má nefna Füsche Berlin Rhein-Neckar Löwen í þýsku úrvalsdeildinni og svo Ribe Esbjerg í Danmörku.

Share this article