Á morgun leggst vanskráningargjald að upphæð 20 þúsund krónur á þá sem ekki hafa skráð kílómetrastöðu sína á Ísland.is. Það á við um bíla sem eru undir tíu tonnum. 40 þúsund króna vanskráningargjald leggst á þá bíla sem eru tíu tonn eða þyngri. Hafi engin skráning verið gerð fyrir 1. apríl verður ekki lengur hægt að skrá rafrænt og verður að fara með bílinn á skoðunarstöð til að láta lesa af mælinum. Vanskráningargjald fellur þó niður ef mætt er á skoðunarstöð innan 30 daga frá álagningu gjaldsins. Sé röng tala skráð er hægt að skrá aftur sama dag og gildir þá seinni skráning.