Guðmundur Ingi Þóroddsson segir málefni sín ríma vel við málefni Flokks fólksins. Hann leiðir lista flokksins fyrir borgarstjórnarkosningar, sem kynntur var í dag. Guðmundur tók þátt í prófkjöri Samfylkingarinnar í borginni í janúar, endaði í 7. sæti en fékk ekki sæti á lista. „Málefnin hjá mér hafa alltaf ráðið för og ég hef verið trúr mínum málefnum alla tíð og ég get nú ekki sagt að ég hafi oft skipt um flokka þar sem þetta er í fyrsta skipti. En ég fæ meira svigrúm fyrir mín málefni og málefni minnihlutahópa og jaðarsettra innan Flokks fólksins og það er það sem skiptir öllu máli,“ segir Guðmundur. Í næstu sætum lista Flokks fólksins í borginni eru Einar Sveinbjörn Guðmundsson, varaborgarfulltrúi, Guðbjörg Ingunn Magnúsdóttir, Sigurveig Jóhannsdóttir og Rúnar Sigurjónsson. Oddvitinn segist ekki útiloka samstarf við neina flokka. „Við erum opin fyrir samstarfi við alla flokka, getum unnið með öllum ef áherslur Flokks fólksins fá að ráða,“ segir Guðmundur. Ef þið myndið meirihluta, viltu verða borgarstjóri? „Já, er það ekki alltaf markmiðið?“ Hér að neðan má hlýða á viðtal við Guðmund Inga í heild. Ragnar Jón Hrólfsson fréttamaður ræddi við hann. Oddviti Flokks fólksins í borginni segir flokkinn geta unnið með öllum svo lengi sem málefni flokksins fái framgang. Hann segir málefni sín og Flokks fólksins passa vel saman, en hann tók þátt í prófkjöri Samfylkingarinnar í janúar.