Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Jóhann Páll í fæðingarorlof

Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 19 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnsýsla Jóhann Páll í fæð­ing­ar­or­lof Andri Yrkill Valsson Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, er farinn í tímabundið leyfi vegna fæðingarorlofs. Í tilkynningu frá ráðuneytinu segir að Logi Einarsson, menningar, nýsköpunar og háskólaráðherra, leysir Jóhann Pál af og fer með málefni beggja ráðuneyta á meðan leyfinu stendur. Jóhann Páll Jóhannsson. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 41 mínútuMENNING OG DÆGURMÁL Tónlist Aldrei-hausar of margir til að heilsa öllum Aldrei fór ég suður hefur gengið í rúmlega 20 ár, án þess að rukka aðgangseyri. Aldrei-húfurnar eru orðnar merki hátíðarinnar. Fyrir 57 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Utanríkismál Rúss­neska snekkj­an stopp fyrir utan Hólma­vík vegna vél­ar­bil­un­ar Snekkjan La Dacha sem meinuð var hafnarkoma á Akureyri fyrr í mánuðinum er stödd við Hólmavík en henni var gert að yfirgefa landið fyrir 30. mars. Landhelgisgæslan segir þetta vegna vélarbilunar sem áhöfnin hafi fengið leyfi til að bregðast við. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Fjallabyggð „Nánast vissir um að það væri enginn graf­inn í flóð­inu“ Björgunarsveitarmaður sem kom fyrstur að snjóflóðinu í Skeggjabrekkudal í Ólafsfirði um helgina lýsir útkallinu og hvernig viðbragðið var. Fyrir 1 tímaMENNING OG DÆGURMÁL Bókmenntir Taka við hálfri millj­ón bóka á ári Mikil umræða hefur sprottið um örlög bóka eftir að Hallgrímur Helgason rithöfundur birti mynd af pappírsgámi fulum af bókum um helgina. Góði hirðirinn seldi um 170 þúsund bækur í fyrra. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Guð­mund­ur Ingi verður odd­viti Flokks fólks­ins Listi Flokks fólksins í Reykjavík var kynntur í Tjarnarbíói í dag. Guðmundur Ingi Þóroddsson leiðir listann. Fyrir 1 tímaÍÞRÓTTIR Lyftingar Eygló Fann­dal til­nefnd sem lyft­inga­kona ársins í Evrópu Eygló Fanndal Sturludóttir, íþróttamaður ársins 2025, er tilnefnd sem lyftingakona ársins hjá Evrópska lyftingasambandinu. Eygló varð Evrópumeistari í -71 kílóa flokki í apríl í fyrra. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Þýskaland Ný #metoo-bylgja í Þýska­landi vegna djúp­fals­aðra nekt­ar­mynda Þjóðverjar hafa flykkst á götur út til að sýna sjónvarpsstjörnu þar í landi, sem varð fyrir kynferðislegu áreiti, stuðning. Djúpfalsaðar nektarmyndir af henni fóru í dreifingu á netinu. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Orkumál Varar ESB-ríki við „lang­var­andi röskun“ á elds­neyt­is­flutn­ing­um Röskun á flutningum með eldsneyti vegna stríðsins í Mið-Austurlöndum gæti orðið langvarandi, segir orkumálastjóri ESB í bréfi til aðildarríkjanna. Orkumálaráðherrar ríkjanna tuttugu og sjö hafa setið á neyðarfundi í dag til að samræma aðgerðir. Fyrir 2 tímumÍÞRÓTTIR Handbolti Rúnar Kára­son leggur skóna á hill­una Rúnar Kárason, fyrrum landsliðsmaður í handbolta, hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna. Rúnar varð Íslands- og bikarmeistari með uppeldisfélagi sínu Fram á síðasta tímabili en liðið datt út í 8-liða úrslitum í gærkvöld. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Fimm ára fang­elsi fyrir að stinga sof­andi mann í rúmi sínu Héraðsdómur Reykjavíkur sakfelldi í dag ríkisborgara frá Kólumbíu fyrir húsbrot og tilraun til manndráps. Manninum er gert að sæta fimm ára fangelsi og greiða þolanda 2,5 milljónir króna í miskabætur. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sam­starf­ið entist ekki fram að kosn­ing­um Ekkert verður af fyrirhuguðu sameiginlegu framboði Vinstri grænna og bæjarmálafélagsins Fyrir Kópavog. Bæjarmálafélagið dró sig út úr samstarfinu og er ólíklegt að það bjóði fram. Vinstri græn bjóða fram sem þau sjálf og óháðir. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Velferðarmál Rann­sókn­in á fóst­ur­heim­il­inu í Garði: „Þetta mál gerist í sam­tím­an­um“ Lögmaður rúmlega 20 barna sem bjuggu á fósturheimilinu Gauksstöðum segir umbjóðendur sína hafa verið vonsvikna með niðurstöðu lögreglunnar. Hún segir nýtt frumvarp til barnaverndarlaga skipta máli fyrir fólkið sem hún vinnur fyrir. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Atvinnulíf Störf tapast þegar aug­lýs­inga­fé streym­ir úr landi Ríflega helmingur þess fjár sem varið var til auglýsingakaupa á Íslandi 2024 féll í skaut erlendra miðla. Formaður Sambands íslenskra auglýsingastofa segir hlutfallið og hraða breytinganna áhyggjuefni. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál Leggja til stór­felld­ar skatta­lækk­an­ir Sjálfstæðisflokkurinn hefur kynnt efnahagstillögur sem fela í sér 140 milljarða skattalækkanir. Á móti leggur hann fram hagræðingartillögur sem flokkurinn metur á 160 milljarða auk stórfelldrar sölu ríkiseigna. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Flokk­ur fólks­ins kynnir fram­bjóð­end­ur í borg­inni Brynjólfur Þór Guðmundsson Flokkur fólksins ætlar að kynna efsta fólk á framboðslista fyrir borgarstjórnarkosningar í vor á blaðamannafundi síðdegis. Flokkurinn er sá eini sem boðað hefur framboð í borginni sem er ekki búinn að kynna nýja frambjóðendur. Níu framboð hafa verið kynnt og oddvitar þeirra. Þar til nú hefur ekkert bólað á oddvita eða öðrum frambjóðendum Flokks fólksins. Í nýjustu skoðanakönnun Maskínu um fylgi flokkanna í borginni mældist Flokkur fólksins með 3,7 prósenta fylgi. Merki Flokks fólksins. RÚV / Anna Lilja Þórisdóttir Fyrir 3 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Tónlist Ást­sjúkt par stork­ar Gísla Mart­eini Birtíngur og Kúnígúnd birtust í Gísla Marteini og stálu senunni. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál 45 kíló af kóka­íni fund­ust í sendi­bíl Smyglið sem uppgötvaðist í Norrænu á föstudag snerist samkvæmt heimildum um að koma 45 kílóum af kókaíni inn í landið. Þetta er stærsti farmur af kókaíni sem hefur verið stöðvaður hérlendis. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Peningar Rukkað fyrir van­skrán­ingu á kíló­metra­gjaldi á morgun Á morgun leggst 20 þúsund króna vanskráningargjald á þá sem ekki hafa skráð kílómetrastöðu sína. Það gjald er 40 þúsund fyrir þá bíla sem eru tíu tonn eða þyngri. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Skúli Tómas ákærð­ur fyrir mann­dráp Fimm af sex málum á hendur Skúla Tómasi Gunnlaugssyni lækni voru felld niður. Hann er ákærður fyrir manndráp í einu þeirra. Landspítalinn hefur afþakkað starfsframlag hans. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Sendir úr landi innan við sól­ar­hring eftir hand­töku Lögregla handtók þrjá útlendinga fyrir þjófnað á höfuðborgarsvæðinu í gær. Þeir játuðu sök og voru sendir úr landi áður en sólarhringur var liðinn frá handtöku þeirra. Fyrir 5 tímumÍÞRÓTTIR Bardagaíþróttir „Skipt­ir svo ógeðs­lega litlu máli hvað fólk er að segja“ Hnefaleikakonan Erika Nótt er þakklát fyrir jákvæð viðbrögð á samfélagsmiðlum og lætur þau neikvæðu ekki hafa nein áhrif á sig. Hún undirbýr sig núna fyrir fyrsta atvinnumannabardagann og leit við í Morgunútvarpinu á Rás 2. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Ísafjarðarbær Kenna húsa­smíð­ar í kjall­ara undir heima­vist­inni Nýtt iðngreinahús hefur ekki enn risið við Menntaskólann á Ísafirði, þvert á loforð ríkisins. Taka átti húsið í notkun um áramótin – en framkvæmdir eru ekki einu sinni hafnar. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samfélag Laus undan þrýst­ingi ugl­unn­ar eftir þúsund daga í röð Leiklistarnemi hélt veislu til að fagna eitt þúsund dögum í röð í tungumálakennsluforritinu Duolingo. Hún gerði sína síðustu æfingu fyrir framan vini og vandamenn á laugardag og hefur nú sagt skilið við ugluna umdeildu. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Ísrael-Palestína Ætlaði að skála í þing­inu fyrir dauða­refs­ing­um Palest­ínu­manna Itamar Ben-Gvir, stuðningsmaður nýrra laga um dauðarefsingu sem einungis verður beitt gegn Palestínumönnum, ætlaði að skála þegar ísraelska þingið afgreiddi málið. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Í tveggja vikna gæslu­varð­hald vegna um­fangs­mik­ils smygls Maður var staðinn að smygli á umtalsverðu af fíkniefnum þegar hann kom á bíl með Norrænu á föstudag. Hann hefur verið úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Tyrkland Ocalan vill ávarpa tyrk­nesku þjóð­ina óhindr­að Stofnandi PKK, sem setið hefur í fangelsi í nærri 30 ár í Tyrklandi, vill fá að ávarpa tyrknesku þjóðina óhindrað til að fyrirbyggja misskilning og ítreka skuldbindingu sína við friðarferlið. PKK lagði niður vopn í fyrra eftir 40 ára baráttu. Fyrir 6 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Tónlist Heil­ag­ur Pétur í Vik­unni Rapparinn St. Pete tróð upp í Vikunni hjá Gísla Marteini á Akureyri. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Búið að opna Holta­vörðu­heiði Brynjólfur Þór Guðmundsson Hringvegurinn um Holtavörðuheiði lokaðist á tíunda tímanum vegna erfiðrar færðar. Fram að því hafði verið þæfingur á veginum. Búið er að opna veginn en hann er á óvissustigi vegna óveðurs og gæti lokast aftur með stuttum fyrirvara. Lægð með snjókomu hefur gengið allhratt norðaustur yfir landið í morgun og víða kyngt niður snjó. Snjómokstur á Holtavörðuheiði. Safnmynd. RÚV / Kristinn Þeyr Magnússon Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Atvinnulíf „Ég þakka guði mínum að þetta fólk þarna á Al­þingi sé ekki að reka fyr­ir­tæk­ið mitt“ Eigandi Skógarbaðanna á Akureyri segir fyrirhugaða hækkun á virðisaukaskatti á baðlón helst leggjast á heimamenn þar sem þeir séu meirihluti gesta. Ómögulegt sé að reka ferðaþjónustufyrirtæki án fyrirsjánleika í aðgerðum stjórnvalda. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Bílar fest­ust á Hell­is­heiði Mist Þormóðsdóttir Grönvold Hellisheiði var lokað í morgun. Veginum var lokað í austurátt vegna umferðaróhapps og í vesturátt vegna bíla sem sátu fastir á heiðinni. Þrengslum var lokað vegna bíls sem þveraði veg. „Það eru bílar fastir hérna og svo lenti snjóruðningstæki í vandræðum fyrr í morgun. Hér er skafrenningur og blint á köflum,“ segir Þorsteinn M. Kristinsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi. Hellisheiði var opnuð á ný um klukkan 10 en enn er lokað um Þrengsli. Hellisheiði. Safnmynd. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Fjölmiðlar Meira en helm­ing­ur aug­lýs­inga­fjár fer til út­lend

Share this article