Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Allt á að vera til reiðu fyrir sögulega ferð NASA að tunglinu

  • What: NASA prepares for historic Moon mission
  • Impact: Historic space mission involving diverse crew members
Read Full Article →

Fátt virðist geta komið í veg fyrir að þrír karlmenn og ein kona leggi í kvöld upp í fyrstu mönnuðu ferðina að tunglinu síðan árið 1972. Óvæntar bilanir hafa valdið talsverðum töfum á Artemis tveir leiðangri bandarísku geimferðastofnunarinnar NASA eftir áralangan undirbúning. Kostnaður hefur einnig farið úr böndunum. Upphaflega stóð til að leggja í hann í febrúar og aftur í mars og nú segja vísindamenn NASA allt til reiðu fyrir tunglskot klukkan 22:24 að íslenskum tíma. Búist er við að hringferðin um tunglið taki um tíu daga fyrir Bandaríkjamennina Reid Wiseman, Victor Glover og Christina Koch ásamt Kanadamanninum Jeremy Hansen. Ferðin markar nokkur tímamót; Koch er fyrsta konan sem tekur þátt í tunglferð, Glover er fyrsti svarti tunglfarinn og Hansen sá fyrsti sem ekki er bandarískur. Þetta verður jafnframt jómfrúrferð voldugrar SLS-tunglflaugarinnar með mannað far, sem er lykillinn að nýrri tunglferðaáætlun Bandaríkjanna. Mönnuð tunglferð er áætluð 2028. Markmiðið er að koma þar upp varanlegri bækistöð sem leggur grunn að frekari landvinningum í sólkerfinu. Næsta verkefni NASA er mannaðar ferðir til reikistjörnunnar Mars , þar sem vísindamenn telja meðal annars líkur á að finna vísbendingar um líf. Verði ekki af tunglskotinu í kvöld opnast gluggi aftur sjötta apríl en veðurútlitið er heldur verra síðar í vikunni.

Share this article