Innlent | Morgunblaðið | 1.4.2026 | 10:15 Sigríður og Jón Pétur taka forystu Sigríður Andersen og Jón Pétur Zimsen. Samsett mynd/Karítas Sigtryggur Sigtryggsson [email protected] Setja bókamerki Nú þegar alþingismenn eru farnir í páskafrí er rétt að renna yfir ræðulista yfirstandandi þings, 157. löggjafarþingsins. Í ljós kemur að tveir þingmenn skera sig úr, þau Sigríður Á. Andersen þingflokksformaður Miðflokksins og Jón Pétur Zimsen þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Þau hafa tekið afgerandi forystu hvað ræðuhöld varðar. Sigríður er sjónarmun á undan. Hún hefur flutt 397 ræður og athugasemdir/andsvör og talað samtals í 1.237 mínútur. Jón hefur flutt 343 ræður/athugasemdir og talað í 1.220 mínútur. Þau hafa því bæði tvö talað í samtals rúma 20 klukkutíma. Í þriðja sæti er Bryndís Haraldsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Hún hefur farið 356 sinnum í ræðustólinn og talað í 991 mínútu samtals. Í næstu sætum eru Þorgrímur Sæmundsson Miðflokki 330/955, Guðlaugur Þór Þórðarson Sjálfstæðisflokki 290/859, Karl Gauti Hjaltason Miðflokki 212/838, Jens Garðar Helgason Sjálfstæðisflokki 300/823 og Sigurður Örn Hilmarsson Sjálfstæðisflokki 221/807. Stjórnarandstæðingar raða sér í efstu sætin eins og gjarnan er. Daði talar ráðherra mest Sá ráðherra sem mest hefur talað er Daði Þór Kristófersson fjármálaráðherra. Hann hefur flutt 264 ræður og athugasemdir/andsvör og talað í 539 mínútur. Aðrir ráðherrar hafa talað minna. T.d. hefur Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra farið 147 sinnum í ræðustól Alþingis og talað í samtals 286 mínútur. Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra, sem var ræðukóngur á 154. löggjafarþinginu 2023-2024, þá óbreyttur þingmaður, hefur talað 154 sinnum í alls í 364 mínútur. Þegar Eyjólfur var ræðukóngur flutti hann 562 ræður og athugasemdir (andsvör) og talaði í samtals 1.936 mínútur. Hann stóð því í rúmar 32 klukkustundir samtals í ræðustól Alþingis. Samkvæmt yfirliti á heimasíðu Alþingis hafa þingmenn farið 10.277 sinnum í ræðustól á yfirstandandi þingi. Þeir hafa flutt 4.123 þingræður og 6.154 athugasemdir/andsvör. Samtals hafa þeir talað í 466 klukkustundir. Síðasti þingfundur fyrir páska var föstudaginn 27. mars. Fyrsti þingfundur eftir páska verður mánudaginn 13. apríl. Frá 1. til 18. maí verður gert hlé á fundum Alþingis vegna sveitarstjórnarkosninganna sem fram fara 16. maí. Samkvæmt starfsáætlun á að fresta þingi föstudaginn 12. júní en þingfrestun gæti dregist eins og oft hefur gerst. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Allt á suðupunkti í Danmörku Hádegismatur á þúsundkall Sigríður og Jón Pétur taka forystu Mokveiðiveisla –„Kaíró í Holunni“ Chris Brown elskar að kyssa giftar konur á tónleikum Umræðan Mótum nýtt húsnæðislánakerfi Þegar kallað er eftir samstöðu í stað umræðu Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Héraðsdómur skammar SKE Vilja eitt skattþrep og hærri persónuafslátt „Mars 2026 fer í sögubækurnar“ Þöggunartilburðir aðgerðasinna þekkt stef Mest lesið Í gær Í vikunni Niðurfelling kílómetragjalds fær Verðhækkanir á íslenskum pylsum vekja heimsathygli Hundleiðinlegt að standa í þessu Enn ein lægðin á leiðinni „Eins og maður sé í stúdíóíbúð“ Andlát: Elías Héðinsson Minnst 7-8 þúsund manns eru á biðlista Alelda bíll við Árbæjarkirkju Trassað framkvæmdir í aldarfjórðung Viðræður um kaup á flugfélagi sem Play stofnaði Rukka fyrir vanskráningu á morgun Natan farinn í meðferð Skúli Tómas ákærður fyrir manndráp Mannleg mistök og brotið yfirstaðið Glæný vél varð eftir í Dublin eftir harða lendingu Lögreglan lýsir eftir manni Straumhvörf orðið í krabbameinsmeðferð Hækkanir á farmiðum eru viðbúnar Hélt að verið væri að hrekkja sig Ekki til umræðu að nýta sérhæfingu Klíníkurinnar Fylgstu með lægðinni ganga yfir Hamas-liðar á Höfðatorgi Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn Ráðist á vagnstjóra og vagninum stolið Alvarlegt slys: Ekið á barn og fullorðinn Daði Már fékk uppsagnarbréf Glæný vél varð eftir í Dublin eftir harða lendingu Hópur ferðamanna setti allt í vasana „Skynja rosalega mikla reiði“ Rukka fyrir vanskráningu á morgun Nýjast á mbl.is » Allt á suðupunkti í Danmörku Hádegismatur á þúsundkall Sigríður og Jón Pétur taka forystu Mokveiðiveisla –„Kaíró í Holunni“ Chris Brown elskar að kyssa giftar konur á tónleikum Umræðan Mótum nýtt húsnæðislánakerfi Þegar kallað er eftir samstöðu í stað umræðu Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Vilja eitt skattþrep og hærri persónuafslátt Straumhvörf orðið í krabbameinsmeðferð „Búinn að vera rosalegur sprettur“ Fulltrúi Íslands í Flórída: Geimkapphlaup hafið Mest lesið Í gær Í vikunni Niðurfelling kílómetragjalds fær Verðhækkanir á íslenskum pylsum vekja heimsathygli Hundleiðinlegt að standa í þessu Enn ein lægðin á leiðinni „Eins og maður sé í stúdíóíbúð“ Andlát: Elías Héðinsson Minnst 7-8 þúsund manns eru á biðlista Alelda bíll við Árbæjarkirkju Trassað framkvæmdir í aldarfjórðung Viðræður um kaup á flugfélagi sem Play stofnaði Rukka fyrir vanskráningu á morgun Natan farinn í meðferð Skúli Tómas ákærður fyrir manndráp Mannleg mistök og brotið yfirstaðið Glæný vél varð eftir í Dublin eftir harða lendingu Lögreglan lýsir eftir manni Straumhvörf orðið í krabbameinsmeðferð Hækkanir á farmiðum eru viðbúnar Hélt að verið væri að hrekkja sig Ekki til umræðu að nýta sérhæfingu Klíníkurinnar Fylgstu með lægðinni ganga yfir Hamas-liðar á Höfðatorgi Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn Ráðist á vagnstjóra og vagninum stolið Alvarlegt slys: Ekið á barn og fullorðinn Daði Már fékk uppsagnarbréf Glæný vél varð eftir í Dublin eftir harða lendingu Hópur ferðamanna setti allt í vasana „Skynja rosalega mikla reiði“ Rukka fyrir vanskráningu á morgun