Lögreglan á Norðurlandi eystra hefur ákært karlmann fyrir að hafa atvinnu og þvætta peninga sem hlutust af þeirri starfsemi. Maðurinn er grunaður um að hafa haft milligöngu um og aðstoðað fólk við að selja vændi á Akureyri og víðar á Íslandi. Samkvæmt ákæru var maðurinn í samskiptum við vændiskaupendur, skipulagði ferðir vændisfólks til landsins og pantaði hótelherbergi fyrir starfsemina. Hann er sagður hafa aflað sér 5,7 milljóna króna með milligöngu um vændi annarra og annarri ólöglegri starfsemi. Peningana lagði hann ýmist inn á eigin bankareikninga eða nýtti þá í spilakassa Happdrættis Háskóla Íslands til að þvætta þá. Ekki hefur tekist að birta manninum ákæru og var hún því birt í Lögbirtingablaðinu í dag ásamt fyrirkalli um að hann mæti í dómsal 7. maí. Verði hann ekki við því gæti dómstóllinn metið fjarvist sem viðurkenningu á sök. Maðurinn bjó áður í Reykjavík en óvíst er um lögheimili hans í dag; það er talið vera í Rúmeníu. Hann á að hafa stundað vændisstarfsemina um eins árs skeið, frá því í október 2023 fram í október 2024.
This article details a criminal money laundering operation, not a technical vulnerability or software threat. The attack vector involved using the University of Iceland's lottery ticket vending machines ("spilakössum HHÍ") to process and launder illicit funds obtained from prostitution-related activities. No technical vulnerability, CVSS score, affected software versions, patch, or workaround is discussed in the provided article.