Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Danir banna sölu á nikótínpúðum með sælgætisbragði

Read Full Article →

Frá og með deginum í dag er óheimilt að selja nikótínpúða með sælgætisbragði, í sérstökum litum og nikótíninnihaldi yfir níu milligrömmum á púða í dönskum búðum. Danska ríkisútvarpið segir frá þessu . Héðan í frá má aðeins selja púða með mentól- eða tóbaksbragði. Þessar aðgerðir eru liður í forvarnaraðgerðum stjórnvalda sem ráðist var í haustið 2024 og eiga að vinna gegn nikótín- og áfengisneyslu barna og ungmenna. Þá verður verslunum líka almennt bannað að stilla áfengum drykkjum upp við afgreiðslukassa eða við sælgætishillur, nálægt barnavörum eða í ávaxta- og grænmetisdeildum. Markmiðið er að draga úr skyndikaupum á áfengi meðal ungs fólks.

Share this article