- What: Facebook requires users to pay for ad-free access.
- Impact: Users may need to pay to avoid data tracking.
Viltu verða áskrifandi að miðlum Meta eða halda áfram að sjá auglýsingar? Þessi spurning blasir við notendum Facebook á Íslandi og eflaust víðar í Evrópu í dag. Til þess að skoða Facebook-vegginn sinn virðast notendur því þurfa að taka afstöðu til þess hvort þeir vilji greiða 900 krónur á mánuði til að koma í veg fyrir að persónugögn þeirra verði notuð í auglýsingaskyni. Guðmundur Jóhannsson tæknisérfræðingur segir þessi skilaboð tengjast innleiðingu Meta á notkun gagna frá notendum í Evrópu, sem var tilkynnt í fyrra en í raun ekki boða neitt nýtt. Meta hafi fengið skammir í hattinn frá Evrópusambandinu vegna breytinganna, þar sem þær voru taldar brjóta gegn lögum um stafræna markaði. „Í raun mætti bara segja að þessi áminning sem er að reyna að fá þig til að greiða áskrift, þetta er í raun bara auglýsing. Það er ekkert hræðilegt að fara að gerast.“ Meta notar persónugögn meðal annars til að þjálfa gervigreindartól og persónusníða auglýsingar að notandanum. Efni frá bandarískum notendum hefur verið notað í þessum tilgangi í áraraðir, en Meta hafði þar til í fyrra haldið að sér höndum þegar kom að notendum í Evrópusambandinu vegna strangra persónuverndarlaga en fyrirtækið lét á reyna í fyrra. Guðmundur segir ekki rétt að notendur þurfi að una því að fyrirtækið noti persónugögn þeirra þó að þeir greiði ekki mánaðargjald, líkt og áminningin á Facebook gefur til kynnaþ „Þú getur afþakkað vinnsluna sérstaklega í stillingunum. Það er alltaf val. En það sem þeir eru aftur á móti að gera líka er að bjóða þér að vera staðfestur notandi Facebook sem er einhvers konar áskriftarleið. Það er í raun og veru ekkert annað en leið til að ná í peninga, svo ég tali hreina íslensku,“ segir Guðmundur. „Miðillinn er ókeypis, bara svo það sé sagt, og þá erum við, notendur Facebook, varan.“ Hann segir mikilvægt að fólk átti sig á því hvað eru opinber gögn á miðlinum. Það sé fyrst og fremst nafn, prófílmynd og allar færslur sem séu birtar opinberlega. Facebook megi aftur á móti ekki nota myndir og færslur sem sé aðeins deilt með vinum eða prívat. Meta sé ekki heimilt að nota skilaboð á Messenger til að afla persónuupplýsinga eða þjálfa gervigreindartól sín.